Enginn skyldi annan slá
Hljóðbrot0:00
Lag Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865
Enginn skyldi annan sláódáð með því fremur15 ára af má sjáeyra og fingrum þremur
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll I, 149: ,,10. Junii var saklaus maður á Vaðnesi í Grímsnesi, Jón Hálfdanarson, skemmdur af 15 vetra gömlum strák, Símoni Brandssyni.
Símon kom heim til bæjarins að nóttu og barði að dyrum. Jón kom út fáklæddur í náttfötum og grunaði ekki um þessi svikræði og gekk út fyrir bæinn en Símon fór eptir honum og hjó hann fyrsta högg í höfuðið og svo hvert eptir annað.
Maðurinn lá í kör um sumarið en Símon náðist og var fluttur til alþingis. Hann fékk það straff að af honum voru höggnir þrír fingurnir, þumalfingurinn og tveir honum næstir og annað eyrað af honum skorið”.