Kristján III. kóngur tók
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Kristján III. kóngur tókklaustrin í sína eiguvaldaættin innlend, klók,öll þau fékk á leigu.
Stjáni þriðji stefnu markarer stendur enn í gildiíslenskir hlutu olígarkarumboð af konungs mildi.FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)
Heimildir og samhengi
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Eldur á Möðruvöllum, 51:
,,12. mars 1554 tók Danakonungur öll klaustrin... undir sig og seldi á leigu sama dag fyrir árlegt afgjald. ...Siðaskiptin gáfu klausturhöldurum tækifæri til geysimikillar auðsöfnunar ...margt bendir til að klausturhaldarar hafi stundum borið allt eins mikið úr býtum og konungur... Deilur Jóns Eggertssonar við Hólabiskup og ættmenn hans (um Möðruvallaklaustur, sjá 1667) voru dæmigerðar deilur um auð og völd.”
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
Kristján III. tók að skipa klausturhaldara í Skálholtsbiskupsdæmi eftir 1541, þegar kirkjuskipan hans hafði hlotið staðfestingu á þingi í því stifti.
Norðlendingar mættu ekki til þingsins, en ,,samþykktu" að viðstöddum knektum á Oddeyri 16. júní 1551.
Vegna jafnræðiskröfu með hjónaefnum runnu ættir ríkra brátt saman í u.þ.b. eina ofurvaldaætt klausturhaldara, lögmanna, sýslu- og lögréttumanna sem gætti hagsmuna sinna gagnvart öðrum íbúum landsins hvað sem danska valdinu leið. Af öðrum Íslendingum á liðnum öldum fara ekki sögur nema helst ef þeir tróðu valdaættinni svo um tær að fært var til bókar. Dæmi: 1681, 1698. Sama gilti annars staðar í evrópu.
Sbr. Arnór Sigurjónsson í formála Vestfirðingasögu: ,,Þannig var víða á þessum öldum, að almenningur var nær því að vera búfé höfðingjanna en menn, og höfðingjarnir einir höfðu efni á að stofna til frásagna eða annars, sem heimildir hafa varðveitzt um".
Leiðari Bændablaðsins, bls. 6, 24. mars 2022, heldur því fram að samsvörun sé með þeim sem fleytt hafa rjómann af íslensku samfélagi og olígörkunum rússnesku sem Jeltsín færði orku- iðnaðar- og útgerðarfyrirtæki ríkisins í hendur. FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)
Þeir Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 55, telja að Íslensku embættismennirnir sem áttu að skrifa undir einveldistöku kóngs í Kópavogi 1662 - sjá þar - hafi óttast um hag valdaættarinnar hér enda var H. Bjelke mútað til að engu yrði breytt 20 næstu árin.
Kóngar fyrirskipuðu að minnka klausturkirkjurnar sem nú skyldu þjóna sem sóknarkirkjur.
Það gerðist á löngum tíma. T.d. reif klh. Páll Guðbrandsson Þingeyrakirkju og hlóð minni torfkirkju 1619.
Klh. á sama stað, Lauritz Gottrup, reisti hins vegar glæsikirkju með útbrotum 1695.
Í nunnuklaustrunum dvöldust systurnar áfram og ætlaður til framfærslu hluti af klausturtekjunum.
Heimild / tilvísun: Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, bls. 100; sjá enn fremur þar á bls. 218, 297 og 386 um tilhögun þessara mála og á bls. 449 ályktun um afdrif klausturbúa og bygginga.