Ormur lengi lipur sem áll
Lag Sá frjáls við lögmál
Ormur lengi lipur sem állvið lögmennsku hvergi staðurErlendur heiti - hermir Páll -hryðjuverkamaður.
Heimildir og samhengi
,,Vegna vanskila og fyrir ýmsar sakargiftir" (Páll E. Ól.) var vikið báðum lögmönnunum frá embættum, Ormi Sturlusyni og Erlendi Þorvarðarsyni:
Ormur Sturluson (1516-1575) varð lögmaður norðan og vestan 1547. Þótt dóttursonur væri þess mikilsvirta Finnboga lm., d.~1515, Jónssonar var hann óreiðumaður, en naut ótrúlega mikillar náðar Friðriks II. sem vildi hann að nýju í stöðuna, ef hann gæti greitt skuldir sínar (sjá 1921), en Eggert Hannesson og lögrétta ekki á sama máli og vék Ormur að fullu frá 1554. Hann náði enn lögmennsku1568 en vikið 1572, og þá varð lm. NV Jón Jónsson, Vindheima-Jón, sjá nánar 1577. Vindheimar þessir á Þelamörk í Eyjafirði.
Mildi Friðriks II. gagnvart Ormi hefur verið skýrð með þeirri sögn, að hann hafi barn þegið silfurlúður að gjöf frá Ormi og munað honum það. (Espólín).
Erlendur Þorvarðarson d. 1575, lm. SV frá 1521 og því lögmaður þegar fógeti hirðstjóra, Diðrik frá Minden, var veginn í Skálholti 1539 og dæmdur óbótamaður fyrir að kalla Ögmund biskup ,,hundabríara".
Erlendur var systursonur Stefáns biskups Jónssonar, d. 1518, og átti að fyrri konu Guðrúnu systur fyrrnefnds Orms lm.NV.
Þegar Guðrún dó fóru á kreik sögur um dauða hennar.
Páll Eggert Ólason segir Erlend ,,speking að viti, afarmenni, ofsamann við drykkju, oft riðinn við hryðjuverk”.
Honum talin fjögur manndráp í Öldinni sautjándu.