Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1668
1668
1668

Skipin strand með fjársjóð full

Hljóðbrot0:00

Lag 10 litlir negrastrákar

Lag Óli Skans

SSkipin strand með fjársjóð fullá fjöru syðra, enenginn hefur gómað gullúr greipum Het-Wapen.

Otti skans, Otti skansenginn vesalingurSigga hans, Sigga hanssögð er fyrir glingur

Otti Bjálki, Otti skanssá mun hafa sveiflað stundumSiggu Eyva´ í dans.Otti Bjálki, Otti skansallir vita að Sigga sér umsængurfötin hans.

Glúmur Gylfason · 1668

Heimildir og samhengi

Árið 1667 fórst hollenska 500 lesta ,,Gullskipið" Het-Wapen, á Skeiðarársandi og létust þá um 140 af ~300 manna áhöfn.
Skipið var á heimleið frá Asíu, en Holland hafði verið í stríði við England frá 1664 og vissu skipverjar ekki að friður var nú saminn. Sigldu því vestur og norður fyrir Írland til að forðast enskar árásir.

Eftir hryðjuverk Englendinga í Loðmundarfirði í júlí 1667 sendi kóngur 4 (her)skip hingað. Að einu kom leki og sneri til Noregs, annað strandaði við Hjaltland, þriðja náði landi, en birgðaskipið, undir stjórn kafteinsins Otte Bjelke, endaði á skaftfellskri fjöru, mannbjörg varð.
Matar- og vetrarvistin hér varð mörgum Dana um megn en hinir hurfu aftur heim 1668 eftir að hafa tekið þátt í að hlaða Skansinn á Álftanesi. Af þeim skans, þ.e., vígi, dró hjáleigan nafn, sem Óli nokkur Eyjólfsson var kenndur við.
Höfuðsmaðurinn, Otte Bjelke, náði góssi úr Het-Wapen enda strandaði skip hans rétt þar hjá skv. Öldinni 17., er segir líka: ,,Þjónusta hans var dóttir Eyjólfs lögréttumanns á Brunnastöðum á Álftanesi (svo) og þáði dýrar gjafir frá Otta”. Lögréttumaður að nafni Eyjólfur Jónsson (~1610-69) finnst á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd og á eina dóttur, Sigríði f. ~1650, d. 1703, er varð síðar prestsfrú á Ofanleiti í Vestmannaeyjum.
Brunnastaði má sjá hér á mynd Mats Vibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurfiskifrettir.is (opnast í nýjum flipa)

Otte Bjelke
(d. 1711lokalhistoriewiki.no (opnast í nýjum flipa)) kafteinn í sjóher Dana 1666, amtmaður í Vardøhus amtlokalhistoriewiki.no (opnast í nýjum flipa)i í Noregi, 1668 til 1680. Hann var bróðursonur hm. Henriks Bjelke (1659, 1660, 1662, 1667). Sjá: Desjamýrarannál V, 277.

Björn Þorsteinsson: Tíu þorskastríð, 57-58: ,,Sjómenn töldu að fjöllin væru svo segulmögnuð, að þau drægju skip upp að hafnlausum ströndum landsins. ...Í heimabyggðum sjómanna lék það ekki á tveim tungum, að Íslandsfarar yrðu fyrir gerningum; þar bjuggu seiðkonur í fjöllum".

Kjartan Sveinsson, Afbrigði og útúrdúrar, 258: ,,Ein var sú guðsblessun sem ...rigndi yfir Skaftfellinga og það voru skipsströnd, ...báru með sér öll lífsins gæði, matvæli og vín, salt og fisk, kaðla og segl og gnægð af góðu og dýrmætu timbri þegar skipin voru rifin. Það þótti hrein dyggð að stela undan af strandi sem mestu svo sýslumaður fengi sem minnst á uppboð".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á fjórum blaðsíðum í 2. bindi Fjallkirkjunnar frá bls. 248 lýsir Gunnar Gunnarsson aðförunum við skipsstrand.

Myndir

← 1667Möðruvellir veittir tveimur1669 →Páll lýsti fullri ábyrgð á