Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1669
1669
1669

Páll lýsti fullri ábyrgð á

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

PPáll lýsti fullri ábyrgð áyfirvaldsins henduref að segði ei jafnskjótt jáað Jón fengist þegar brenndurLagarfljótsorminn loft við berlítið kaupmenn græðalífi kóngsins ljúka feren lifir galdraræða.

Glúmur Gylfason · 1669

Heimildir og samhengi

Í bréfi, dagsettu 7. júní 1669 til Þorleifs lm. Kortssonar, brýnir séra Páll Björnsson í Selárdal lögmanninn til að brenna Jón Leifsson frá Selárdal í Arnarfirði.

Desjamýrarannáll V, 277: ,,Sást ormurinn í Lagarfljóti af Jakob Hildibrandssyni sem þá bjó á Arnheiðarstöðum og hans heimafólki.
Var almennilega haldið að boðaði þann mikla fjárfellir og harðindaslag sem á féll veturinn eptir, vorið og sumarið, hvört almennilega þar eptir var kallað harða sumar”. (1600)

Tap á Íslandsversluninni. Íslendingar beðnir að gerast þátttakendur í verslun.
Brynjólfur biskup Sveinsson hvatti til þess, en undirtektir engar. Íslenskir fjármagnseigendur töldu tryggara, sem það og var, að festa fé sitt í jörðum. Sjá 1581, 1640, 1650.

Friðrik III. deyr 9. febrúar 1670.
Dauði kónga og valdataka þeirra voru um aldir helsta viðmið þegar fjallað var um tímasetningu atburða.
Sbr. að fæðing Jesú er í Guðspjöllunum miðuð við þá Ágústus og Heródes og Skjóna fæddist vorið sem Stalín dó (1953) sagði Áslaug Björnsdóttir á Löngumýri, Húnavs.. eiðsvarin1934 og varð svarið til þess að Björn, alþm. faðir hennar hélt hryssunni Skjónu, sjá hér við 1934.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1669

  • Hressir þá úr spori spretta
← 1668Skipin strand með fjársjóð full1669 →Hressir þá úr spori spretta