Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1649
1649
1649

Oddur samdi sálma og lög

Hljóðbrot0:00

Lag Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828

OOddur samdi sálma og lögsat á Reynivöllumöðrum kunni fleiri fögen flóðin ollu spjöllum.

Glúmur Gylfason · 1649

Heimildir og samhengi

+ Sr. Oddur (*~1565) Oddsson á Reynivöllum ,,talaði mörg tungumál" segir Fitjaannáll, lærði læknislist af erlendum manni í Skálholtsskóla - enskum, segir Jón Þ. Þór, bls. 115 í Sögu Grindavíkur I - og samdi lækningabók og ritaði um grös og rím, en einstakt er að hann samdi líkega lög við eigin sálmatexta - hvort tveggja undir kalvínskum áhrifum. Dæmi þeirra á hljómdiski með Barbörukórnum undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar í útsetningum Smára Ólasonar.
Sjá tóndæmi við 1642.

Þrjár skriður féllu á Reynivelli í Kjós á 17. öld: 1642, drápust 13 naut, 1671, 1699 dóu 7 menn.
Skarðsárannáll I, 267: ,,Þann 20. Februari (1642) hljóp snjóflóð á Reynivelli í Kjós sem burttók hey mestöll úr garðinum og braut hlöðuna og fjósið og drap 13 naut en tvö komust af og bar grjót á túnin og skemmdi þau”.

Aðrar heimildir: Smári Ólason; Ísl. æviskrár Páll Eggert Ólason.
Skjalutgafa.ni.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1648Arngríms Kristján fjórði fékk1650 →Aldrei getum fundið frið