Aldrei getum fundið frið
Lag Veröld fláa sýnir sig - Bj.Þ. 874
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Aldrei getum fundið friðfyrir kóngsins gjörðum16% viljum viðvexti fá af jörðum.
Asklok fyrir himin höfðuhöfðingjar þessa landsaldrei sig - en aðra kröfðu -álna stigu dans.
Heimildir og samhengi
Kristján IV. reyndi að hemja spillingu.
Bannaði að múta dönskum embættismönnum á Íslandi 1635 og landeigendur skyldu (1619) gjalda tíund af jörðum en ekki leiguliðar, en lögrétta neitaði tvívegis – þar sátu landeigendur.
Nú var Kristján IV. látinn og skyldi þá enn reynt að hækka afgjöldin, en Friðrik III. fór eins að og lét Henrik Bjelke banna hækkunina og las hann upp texta þess efnis sem birtur er í Alþingisbók bls. 262.
Því hefur verið haldið fram að kóngarnir dönsku hafi tekið alvarlega áherslu Lúthers á ,,réttlæti furstans", en spillingin í Vatikaninu var ein rótin að siðbyltingunni. Í því ljósi má sjá einveldistökuna 1661/2, sem velti mafíufyrirkomulagi aðalsins í Danmörk og Noregi og gróf undan forréttindastéttinni á Íslandi, a.m.k. þeim ættum sem þá sátu við kjötkatlana.
Talið að hagnaður jarðeigenda af jarða- og kúgildaleigum hafi jafngilt 16% vöxtum þegar vel áraði. Í Nýrri Íslandssögu Björns Þorsteinssonar eru nefndir 16% vextir á bls. 134.