Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1653
1653
1653

Í Háeyrarflóðinu fórust menn

Hljóðbrot0:00

Lag Angri sáru yfir slær - Bj.Þ. 827

ÍÍ Háeyrarflóðinu fórust mennog fé í húsum inniog gerast kann það aftur ennöðru og þriðja sinni.

Glúmur Gylfason · 1653

Heimildir og samhengi

Háeyrarflóðið:
Sjór gengur á land við suðurströndina vestanverða 2. janúar 1653, nefnt Háeyrarflóðið eftir samnefndri bújörð á Eyrarbakka. Drukknaði þar einn maður á landi, á sjó fórst einn bátur með áhöfn, skepnur drukknuðu í húsum inni og 9 skip eyðilögðust.
Tilvísun: Fitjaannál II, 170.

Í Sögu Hraunhverfis á Eyrarbakka, bls. 11, rekur Guðni Jónsson frásagnir Sjávarborgar- og Seiluannála af fóði þessu.

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Setbergsannáll greinir frá ,,flóðinu mikla" þarna 1234, en flóðið mikla, aðfararnótt 9. janúar 1799, sjá þar, var fremur kennt við Bá(t)senda, sem hafa enn eitt nafn: Bássandar (P. E. Ól.).
Sjá Stokkseyringasögu Guðna Jónssonar,
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Nóttina 8. til 9. janúar 1990 gerði enn stormflóð og flæddi sjór yfir varnargarðana frá því eftir 1799 og þann frá 1892 og olli miklum spjöllum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þetta gerðist á sama mánaðardegi og flóðið 1799.
Sjá Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)

Bók Ingu Láru Baldvinsdóttur, ,,Margur í sandinn hér markaði slóð", bls. 84, segir frá sjávarflóðum á Eyrarbakka 21. janúar 1925, 3. nóvember 1975, 14. desember 1977 og 9. janúar 1990, sem var hið mesta síðan 1799 enda féll loftvog niður í 943 mb. samfara stórstraumi. Sjór braut rúður í húsum og flæddi þar inn og bar með sér grjót. Tjón varð töluvert á mannvirkjum.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1652Hér skal nema staðar: stans,1654 →Þá upp á land flaut karfakös