Þá upp á land flaut karfakös
Lag Hani, krummi, hundur, svín
Þá upp á land flaut karfaköskarlar fengu sér í glösháir og lágir í einni ösum Eyrarbakka og næstu grös.
Innsiglingin ekki færutar máttu hjakkaeftir vikur eina og tværinn tókst slaga á Bakka.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, 173: ,,Um þorrakomu rak mikinn karfa austan með á Eyrarbakka og Hafnarskeiði svo hann var seldur upp um sveitina, hundrað á fimmtíu álnir og var stórt gagn þeim sveitum. Á Háeyri á Eyrarbakka... var þriggja stafgólfa grindarhús fullt yfir bita milli gafls og gáttar með karfakös. Skemmdist þó ei vegna kælu og frosta; þar af var mestu burtlógað á hálfum öðrum mánuði ókeypis flestum, eptir skipun Rannveigar Jónsdóttur (f. 1584) á Háeyri af meðaumkvun við fátæka og þurfandi, sem þá voru margir. ...Í þessum mánuði (22/2) andaðist Rannveig Jónsdóttir á Háeyri, guðhrædd mey, fróm og nafnfræg af dyggðum og góðgerðasemi við auma og volaða, um sjötugsaldur”.
,,Rannveig, nefnd mjóa, var ógift, ..efnuð vel, hafði umtalsverða útgerð og ól upp fjölda fósturbarna". (Saga Íslands VI, 141). Hún var dóttir Jóns á Holtastöðum Björnssonar á Mel, sem hálshöggvinn var í Skálholti 7/11 1550, systir Helgu biskupsfrúar Odds. Sjá 1591. Móðir Rannveigar hét Guðrún Árnadóttir, d. 1603.
18/7 komst skip dönsku verslunarinnar inn á leguna við Eyrarbakka eftir þriggja vikna bið fyrir utan.
Skv. ,,Austantórum” Jóns Pálssonar var slíkt síður en svo einsdæmi og gilti jafnt um út og innsiglingu og var þetta hættulegasta höfn landsins sem skip- og mannskaðar herma.
Bíði venjulega og ,,jafnvel 3 vikur eða meira” skrifar sm. Steindór Finnsson til amtsins.
Sbr. Vigfús Guðmundsson í Sögu Eyrarbakka, 432.
Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)