Oss við verðlagshækkun hrís
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Lag Enginn þarf að óttast síður
Oss við verðlagshækkun hrísHollendinga.Ei er Bjálki í auga flísÍslendinga.
Þáðu tveir af Trellund sykurtennur sjá á lofti blikurmargar tekur varla vikurað verki finni niðu'r í kvikur.
Heimildir og samhengi
Engin dönsk sigling 1657-9 vegna stríðs við Svía, en kóngur fékk Jonas Trellund til að sinna Íslandsversluninni og verslaði hann hér t.o.m. 1668, en varð þá gjaldþrota.
Trellund var fæddur í Ribe, en kvæntur inn í auðuga hollenska kaupmannsfjölskyldu sem hafði yfir a.m.k. 12 skipum að ráða en hann sinnti aðeins þeim verslunarstöðum sem mest gáfu af sér, þ.e., á SV og Vesturlandi. Eitt skipanna varð síðbúið utan og sökk í Flateyjarhöfn með 60 þúsund fiskum og 14 fallbyssum, en byssunum var bjargað nema e.t.v. einni, sem síðar var dregin upp - illa farin.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Kafað var niður að skipinu 1992 og hefur verið rannsakað síðan, sjá ofanritaðað slóð.
Skjalfornleifur.blog.is (opnast í nýjum flipa)
Fyrsta(?) heimild um sykur á Íslandi er að Trellund hafi gefið tveimur ríkustu mönnunum sykurtopp, þeim Eggert ríka Björnssyni á Skarði, Skarðsströnd og Þórði biskupi Þorlákssyni. Sykurinn steyptur í keilu sem vóg 5 til 15 kg (5 pund um aldam. 1900 segir m.a. í Verslunarsögu V-Skaftfellinga I, 273) enda gáfu Danir bæði grænlensku- sem og íslensku keilulaga fjalli þetta nafn.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Um 200 árum síðar, 1887, birtist í Reykjavík auglýsing frá dönskum lyfjasveini og söngvara, að tæki að sér að gera við tennur án þess að draga þær úr.
Sá var sama ár skemmtikraftur og söng óperuaríur við undirleik Steingríms H. Johnsen á fyrirlestri sem Hannes Hafstein hélt í Gúttó.
Steingrímur var sonarsonur Valgerðar bsikupsfrúar, sjá 1856.
1896 byrjaði tannviðgerðir í Reykjavík Vilhelm Georg Theodor Bernhöft f. 5. janúar 1869 í Reykjavík, sonarsonur fyrsta bakarans, sjá 1834. Hann var almennur læknir, útskrifanður frá landlækni og hafði í tvö ár kynnt sér tannlækningar í Danmörk. Sjá nánar hér: Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Orðið tannbursti hefur varla verið til í íslensku þá.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ný kaupsetning vildu kaupmenn nú að tæki gildi enda vöruverð erlendis orðið hærra en það var 1619. Gísli Skálholtsbiskup hafði fengið þá kaupsetningu frysta þegar átti að hækka, 1632, en nú tókst hm. H. Bjelke, sem Íslendingar kölluðu Bjálka, enn að leika sama leik og stóð það verðlag meðan hann lifði, eða til 1684.
Segir Páll Eggert í Sögu Íslendinga V, t.d. á bls. 426, verðlag orðið mun hærra erlendis á þessum árum en það var 1619.
En Trellund aftók hundraðskaup 1658, þ.e., e.k. heildsölu á betri kjörum til þeirra sem keypt höfðu í miklum mæli og braskað með þegar kaupmenn voru farnir, en alþingi bannaði kaupmönnum vetursetu.
Trellund kom víða við á ævinni og má fræðast um hann á slóðinni Fornleifur.is.
Heimildir: Annálar; Saga Íslendinga V; Fornleifur.is;
Um laun- og okurverslun Íslendinga á vetrum skrifar Jón Þ. Þór í bók sinni: Bauka-Jón bls. 18;
Um bjálka og flís, sjá Mattheus 7, 3.