Tíðindin þá fær að frétta
Lag 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir fingur
Lag Sá frjáls við lögmál
Tíðindin þá fær að fréttaí framan sig Torfi mun bretta og gretta.En Kötlu mál úr klaufum slettasvo keyra má nú fyrir Víkurkletta.
Að vatnsflóð kom úr KötlugjáChriste & Domine tibikennum þar fært er færleik áfyrrum var tvítugt dýpi.
Heimildir og samhengi
Annálar V, Fitjaannáll 88-89: ,,Þann 4. Decembris þingaði Árni Oddsson lögmaður á Vatnsleysu í Biskupstungum. Voru dæmdar af Torfa stórar sektir, hans forléningar og æra”.
Með fulltingi fóg. Klein, vék lm. Árni Oddsson (1592-1665) sm. Torfa Erlendssyni (1598-1665) frá Árnessýslu. Sonur Torfa, Þormóður (d. 1719) sagnaritari, sagður hafa beitt sér við hm. H. Bjelke vegna föður síns og fékk Torfi þá sýsluna aftur 1662 - þrátt fyrir vanskil - enda stóð ekki á honum að skrifa undir einveldissamþykktina í Kópavogi.
Páll Eggert Ólason kallar Torfa hörkumann, fégjarnan, óvinsælan og illa að sér, en Árni Óla: ,,uppivöðslu- og hrösulmenni". (1644/1662).
Í afar stóru Kötlugosi varð til núverandi vegstæði undir Víkurhömrum í Mýrdal: Öldin sautjánda segir 40 faðma landfyllingu komna þar sem áður var 16 faðma dýpi, en Árbók Espólíns 6. hluti, 26: ,,...ok var þar þurt um morguninn, sem 20 faðma djúp var um kvöldit fyrir".
Rímsins vegna er kletturinn í flt.
Vefuradventures.is (opnast í nýjum flipa)