Með Hóli Páll fékk Helgu náð
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Með Hóli Páll fékk Helgu náðog hún fékk stóran magaen illa gáfust girndarráðgjarnan í þá daga.Söfnuðust fyrir sólu skýsamkomulagið þyngraþá skotinn fast varð fljóði ífjörutíu árum yngra.
Staðarhóls-Páll sendi biskupi bréfí bréfunum voru það stefin:,,Um fingur minn Jóni frá Vindheimum vefverði mér Halldóra gefin".
Heimildir og samhengi
Eftir siðbreytingu reyndu ýmsir að ná aftur jörðum sem Stólarnir höfðu náð undir sig í kaþólsku og nutu stuðnings hstj. Páls Stígssonar. Þannig náði Páll Jónsson frá Svalbarði, Ef., Staðarhóli af Skálholtskirkju með konungsúrskurði 1554. Leikurinn til þess gerður að ná (1558) jafnræði við Helgu Aradóttur Jónssonar biskups Arasonar. Páll nálægt tvítugu og lauk hjónabandinu ~1578 enda girndarráð.
Eftir að Páll eignaðis Staðarhól, 1554, fékk hann sér dæmt jafnræði með Helgu, þar sem fjárhaldsmaðurinn, Þorleifur afi hennar, Möðruvöllum, Grímsson sm. Möðruv. Pálssonar, hafði staðið móti ráðahagnum. Talsverður munur var þó á eignum þeirra og eigi fjarstæða að dómendum hafi verið þægt.
Áttu þau ekki að hafa risið úr rekkju vikum saman eftir brúðkaupið.
Skildu að borði og sæng eftir langvarandi ósamkomulag 1578. Ort hafði þá Páll:
Gerist þú í geðinu ill / gættu að þér, kona!
Tungu þína tem og still / talaðu ekki svona.
Sú sem Páll lagði hug á um 1594, og ~40 árum yngri en hann, var Halldóra Guðbrandsdóttir biskups. (1624).
Þau Helga og Páll voru foreldrar Ragnheiðar móður Brynjólfs biskups Sveinssonar. Skv. Jóni Espólín ritaði Páll Jónsson Guðbrandi biskupi bréf 1593 til að biðja Halldóru dóttur hans og bauð fylgi sitt gegn Jóni bróður sínum (1606).
Páll lést 1598. (Sjá Sögu Íslands VI, 167).
Fleiri sögur af Staðarhóls-Páli:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)