Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1557
1557
1557

,,Réttast", sagði skirjan: ,,skera

Hljóðbrot0:00

Lag Langt fyrir utan ystu skóga

Lag Augun mín og augun þín

RR,,éttast", sagði skirjan: ,,skerasköpin undan drengjunum"sveini sýndist svo að geraer sveittust hjón á engjunum.

Þó var ekki það hann vildiþegar Bjarni reiður slófrú hlaut meiri skaða en skyldiskass af löðrung bónda dó.

Iðraðist í ösku og sekkaf því leiddi randið:Bjarni þrisvar brotinn gekkberfættur kringum landið.

Glúmur Gylfason · 1557

Heimildir og samhengi

Hér gert ráð fyrir að þetta mál og kárína hafi tekið 3 til 4 ár.

Skarðsárannáll I, 132 við árið 1553: ,,Austur á landi bjó einn maður er Bjarni hét. Hann átti nokkur piltbörn við konu sinni. Bjarni var hversdagslega gæfur maður og ráðvandur en kona hans sinnisstærri og málhrópsöm. Piltar þeirra voru gangfráir er þetta bar við. Það var máltæki þessarar konu og hótan við drengina er þeim varð á nokkuð eður breyttu af hennar vilja, að hún sagðist skyldu skera undan þeim sköpin. Þessa hætti hennar hugfestu sveinarnir ...svo bar við er þau hjón voru að heyverki en börnin við hús að leik sínum, að yngri pilturinn misþóknaðist þeim eldra, svo sá hinn elsti hótaði honum að skera af hans sköp, ef hann gerði ekki að. Hinn yngri gegndi því ekki og fékk hinn sér þá hníf og lagði þann yngra niður og skar af honum hans leyndarlim, og dó svo það barnið. Kom þá móðirin að, sá hvað um var og varð bæði hrygg og reið og sló drenginn þann, sem barnið skaðaði, og varð meira en hún hugði svo það barn dó og. Eptir það kom Bjarni heim frá verki sínu og leit nú börnin dauð. Varð honum þá og mjög mikið um er hann vissi konan hafði sálgað barninu, en hitt skeð af hennar orðbragði, varð reiður og sló konuna meira en skyldi eður vildi og dó svo konan. Kom þá hryggð að Bjarna og angur, sagði mönnum til hvernig komið væri og iðraðist verks síns. Er svo mælt, að höfðingjum landsins hafi litist hann skyldi ganga um kring Ísland og á hverja kirkju og berfættur öllum þeim tímum er hann þyldi ...því í þann tíma voru skriptir og carínur á málum en ekki alltíðum féútlát ... Bjarni þessi gekk þrisvar kringum Ísland, og um síðir nam hann staðar í Skagafirði og bjó á Efranesi á Skaga, giptist þar og bjó. Var hann sem að sjá sísorgandi maður ..það var til marks um landgang Bjarna að hann var sífelldlega berfættur, og hann gekk svo hart um grjót sem hver einn skófatnaður”.

Reynir Pétur Steinunnarson gekk hringveginn kring um landið 1985 og safnaði áheitum til íþrótta/ leikhúss á Sólheimum í Grímsnesi þar sem hann býr. Reynir Pétur er fæddur 1948.
Vefurwift.is (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

SumariðWikiwand (opnast í nýjum flipa) 2005Wikiwand (opnast í nýjum flipa) gekk Stgeingrímur J. Sigfússon, þá almennur þingmaður VG, frá ReykjanestáWikiwand (opnast í nýjum flipa) að LanganesiWikiwand (opnast í nýjum flipa). Steingrímur er fæddur 1955.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

2021 gekk Þorsteinn Bergsson, fv. sauðfjárbóndi á Unaósi, þvert yfir Ísland um 65. breiddarbaug á 30 dögum, þá 57 ára.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Þarf Guinnes ekki að skrá göngu Bjarna sem heimsmet?

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1556Áætlun kóngsins er kemur í ljós1558 →Með Hóli Páll fékk Helgu náð