Byssur fengu sýslur sex
Lag Yfir kaldan eyðisand
Byssur fengu sýslur sexsendar að þær notien Íslendingum í augum vexað eiga hleypa af skoti.
Heimildir og samhengi
Magnús prúði Jónsson ritaði kóngi um ránin í Saurbæ, Rs. og á Patreksfirði 1579. Sendi nú kóngur 8 spjót og 6 byssur í hverja sýslu. Þótti þá koma í ljós að Íslendingar voru orðnir óvanir vopnaburði og dæmi hver fyrir sig hvort það hafi verið jákvætt eða neikvætt.
Á kápu ,,Frásagna af Íslandi", útg. 2013 af Sögufélaginu í umsjá Más Jónssonar og Gunnars Þórs Bjarnasonar, segir að í frásögnum útlendinga af Íslendingum væri þeim brugðið um hugleysi og sagðir óhæfir til hermennsku. Var því óðar mótmælt og nefnt sem dæmi, að ,,víst hefðum við drepið Spánverja”!
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
1581 lét Magnús prúði á héraðsþingi dæma að hverjum bónda væri skylt að eiga vopn til að verja landið. Nefnt Vopnadómur Magnúsar prúða. Dæmir hann að hver skutulsveinn skuli eiga harðneskju, vopntreyju, brynju, brynkollu, og brynglófa, brynhosur, hjálm, stálhúfu, skjöld og sverð, spjót, plátu og buklara, handboga með tvennum tylftum brodda. Allir skattbændur kaupi eina luntabyssu og 3 merkur púðurs og atgeir. Þeir bændur sem eigi 20 hndr. kaupi fyrir hvern sinn vígfæran mann: byssu, boga og langspjót. (Skarðsárannáll I, 159, 164-5).
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)