Stjórninni þótti landinn latur
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Stjórninni þótti landinn laturog lítið vanda dómaÍslandsklukka og fiskur flaturfremji landsins sóma.
Heimildir og samhengi
Kristján IV. enn ómyndugur, fæddur 1577. Ríkisráð stjórnar og gerist athafnasamt í málum Íslands með því að stofna Yfirdóm, ákveða skjaldarmerki, senda alþingi klukku og láta gera húskofa yfir lögréttu að ári. Áður höfðu gamlar sprungnar kirkjuklukkur verið sendar til Danmerkur til viðgerðar eða bræðslu. Ólafur Haraldsson Noregskóngur gaf viðu til kirkju á Þingvöllum árið 1015 og mikla klukku, sem enn var til 1230 að sögn Snorra Sturlusonar. Enn á Haraldur harðráði, d. 1066 að hafa sent viðu og klukku til Þingvalklakirkju, og ekki óhugsandi að úr þessum klukkum hafi klukkan frá 1593 verið steypt, en hún á að hafa sprungið 1722.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
,,Á sögustöðum", bls. 340, fjallar Helgi Þorláksson um klukkur á ÞIngvöllum.
Síðan 1563, hafði lögrétta, lögmenn og hirðstjórar í 30 ár hummað fram af sér að stofna Yfirdóm. Ríkisráð segist hafa spurnir af því að lögmenn kveði upp dóma sem eigi finnast réttir vera. (Alþbók.) Lögmenn höfðu um þessar mundir einnig sýslur og dæmdu því á tveimur dómstigum og jafnvel í sjálfs síns sök án þess að hægt væri að áfrýja öðru vísi en að skjóta máli til konungs, sem var kostnaðarsamt. Því er nú bætt við einu dómstigi, Yfirdómi. Þar sátu 24 lögréttumenn auk amtmanns í forsæti - síðar stiptamtmaður. Tvívegis var fækkað um helming í dómnum og að lokum í þrjá, 1801.
Hvaðan hafði ríkisráðið spurnir af því að lögmenn kvæðu upp ranga dóma?
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 269: ,,...veturinn 1592-3 var hann (Arngrímur lærði Jónsson) utanlands í erindum Guðbrands biskups, í deilum hans við Jón lögmann Jónsson".
Saga Íslendinga VI, 82: ,,...líta mátti á tilveru þessarar nýju stofnunar sem skerðingu á valdi lögmanna ...í augum biskups (Guðbrands) mátti einu gilda þótt völd lögmanna og lögréttu skertust eitthvað en konungsvald ykist að sama skapi" einmitt þegar Jón Jónsson er lögmaður og á í hörðum málaferlum við Hólabiskup enda segir í kóngsbréfi 1593 að dómurinn skuli fjalla um þá þrætu. (Skarðsárannáll).
Í bók Björns Þórðarsonar, Landsyfirrétturinn 1801 - 1920, frá bls. 10, eru tíundaðir þeir gallar við Yfirdóminn, að forseti hans, amtmaður, var ekki ætíð lögfróður, og þegar leið á 18. öld var alþingi oft svo fásótt að erfitt reyndist að finna þessa 24 meðdómendur og ,,varð að tína þá til úr ferðamannaslangri" segir Magnús Stephensen, síðar dómstjóri.
Kórónaður grár útflattur fiskur á rauðum grunni varð nú opinbert skjaldarmerki Íslands. Það merki höfðu Hansakaupmenn í Björgvin notað áður fyrir íslenskan fisk. Fiskmerkið gilti til 1903, en þá varð hvítur fálki á bláum grunni skjaldarmerki Íslands. Merki Íslands undir Noregskonungi og allt til 1593 var rautt upprétt standandi ljón í profil og sneri til vinstri, og hélt öxi lóðrétt upp með framlöppunum, á þrílitum skildi: 7 bláar og 7 hvítar (silfur) þverrendur neðan frá upp að hálsi ljónsins, en grunnurinn gylltur þar fyrir ofan. Skjaldarmerki þessi prýða kápu bókar Lýðs Björnssonar, Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu, Rvk. 1983.