Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Að Árhrauni bæði og Brúnastöðumbarna gæta ei þarfá botni Hvítár víst ei vöðumvatnið sporlaust hvarf.
Hestfjalli undir ormur lá- má ætla að þyrfti ropa -því Hvítá-eystri enginn sáeftir ´ann fékk sér sopa.
Heimildir og samhengi
Skarðsárannáll I, 177: ,,Þann 19. Novembris þverraði Hvítá í tveim stöðum, hjá Árhrauni á Skeiðum og í Flóa austan til í landinu hjá Brúnastöðum, nær þvert yfir um. Þar var gengið þurrum fótum í einn hólma sem áður var ófært og teknar þaðan hríslur til merkis".
Fitjaannáll 1702:
,,Þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594”.
Sama gerðist 1943, þ.e., Hvítá þornaði upp við Brúnastaði.
Heimildarmaður: Guðni Ágústsson frá Brúnastöðum þann 23. apríl 2021.
Vitneskjuna hafði hann frá foreldrum sínum þar á bæ. Einnig að gömul kona í sveitinni, sem vissi um eldri tilvikin, rekti þau öll þrjú, 1594, 1702 og 1943, til þorstláts skrímslis sem bæli sitt ætti undir Hestsfjalli.
Að sögn Gísla biskups Oddssonar varð skrímslisins og vart í Hvítá við ferjustaðinn til Skálholts árið 1600. Sjá þar.
Vefurfr.wikiloc.com (opnast í nýjum flipa)
Vefurbildalian.blogspot.com (opnast í nýjum flipa)