Úlfaldanum ekki bar
Lag Dvel ég í Draumahöll
Úlfaldanum ekki barinnivistin betrien nafnið Árna nefnt þá varvarð nálaraugað metri.Engan þekkti Árni þarþví englar, skreyttir fiðritjáðu að fjármagns forkólfarflestir gistu niðri.
Heimildir og samhengi
(Matteusarguðspjall 19, 24: Úlfaldi og nálaraugað).
Lést Árni sm. Hlíðarenda Gíslason, f. 1520. ...,,áður en giftist átti Árni tvær dætur með Helgu Tómasdóttur ábóta að Munkaþverá". (Ísenskar æviskrár, PEÓ).
Af sagnariturum, fær Árni einkunnirnar: harðdrægur, óbilgjarn, harðlyndur, ágengur, gjörræðismaður, fjáraflamaður mikill, gerði sér allt að féþúfu enda mikilmenni og vel gefinn.
Árni var frá Hafgrímsstöðum í Skagafirði, 5. maður frá Vatnsfjarðar-Kristínu Björnsdóttur Jórsalafara (d. 1415) og réðist ungur vestur til styrktar öldruðu mikilmenni, Jóni Eiríkssyni (d. ~1553), sem var 5. maður í beinan karllegg frá Þorsteini hstj. og lm. Eyjólfssyni á Urðum.
Jón Eiríksson, sem var bróðir Sæmundar ríka í Ási, Holtum, Rang., hafði verið í því erfiða hlutverki samfellt frá 1518, (í fyrri sið) að koma í veg fyrir að erfingjar Björns Guðnasonar í Ögri yfirtækju Vatnsfjörð sem Stefáni Jónssyni, Skálholtsbiskupi, tóks að lokum að ná af Birni eftir 200 manna (?) herförina 1517. Björn í Ögri, d. 1518, var 4. maður frá Birni Jórsalafara Einarssyni, d. 1315, sem ánafnað hafði Skálholtskirkju bændahlutann í Vatnsfirði eftir sinn dag. En kirkjan átti fyrir hinn helming jarðarinnar, en fram að dauða Björns Guðnasonar hafði þessi gjafgjörningur Jórsalafarans ekki komist til framkvæmda og miklar deilur staðið um sem kostað höfðu mannslíf.
Þarna reyndist Árni Gíslason réttur maður á réttum stað til að fást við dótturson Björns heitins Guðnasonar, þ.e., lm., Eggert Hannesson og tengdason hans, Magnús prúða Jónsson, sjá 1569.
(Tilvísun: Vestfirðingasaga Arnórs Sigurjónssonar).
Fámenn stétt forréttinda- og auðmanna varð þó að grafa stríðsöxina þegar kom að því að gifta börnin: Þannig átti sonur Árna, Sæmundur, Elínu dóttur Magnúsar prúða, sem var einn Svalbarðsbræðra, óvina Guðbrands biskups, sem þó að lokum gifti Kristínu dóttur sína sm. Ara í Ögri, syni Magnúsar 1594.
Sviptur sýslu ,,flýði” Magnús prúði Norðursýslu (Þingeyjars.) undan ,,Fúsa sem kallaði sig sýslumann” - sjá 1569, en sonarsonurinn, Magnús Baskaskytta Arason - sjá1615, kvæntist Þórunni ríku Jónsdóttur Vigfússonar Þorsteinssonar, þ.e., fyrrnefnds Fúsa, en var ekkja eftir Sigurð yngra Oddsson, biskups, sem drukknaði í Hvítá1617og hani fann í ánni, sjá þar.
Eiginkona Árna Gíslasonar var Guðrún Sæmundsdóttir ríka frá Ási í Holtum, Rang., bróðurdóttir fyrrnefnds Jóns Eiríkssonar í Vatnsfirði.
Sjá 1562, 1568, 1570, 1572, 1594, 1617. Heimild m.a. Íslenskar æviskrár; Arnór Sigurjónsson, Vestfirðingasaga.
Axel Kristinsson, Hnignun, 174: ,,Öldum saman hafði lítill hópur auðmanna einokað flest embætti landsins. Fólk úr þessum forréttindahópi mægðist ákaft innbyrðis sem varð til að þjappa saman stórum jarðagóssum”.
Úlfaldi rekinn að hliðinu Nálarauga á Jerúsalemmúr:
Vefuralamy.it (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)