Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1598
1598
1598

Hjuggu bolnum höfuð frá

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

HHjuggu bolnum höfuð fráHóladraugnum Lokaaftur gat ei gengið þágröf í mátti hoka.

Af demóna og dauðra völdumdauðsföll kunnum nefnadæmi finnast dóma á öldumhvar draug var lesin stefna.

Glúmur Gylfason · 1598

Heimildir og samhengi

Skv. Skarðsárannál I, 182 fékk Sigríður dóttir Þorkels Gamlasonar, Hólaráðsmanns og hreppstjóra, ,,aðsókn og hörmulega ónáðan”. Urðu menn þá hvorki í vafa um hvað ylli né hversu meðhöndla skyldi sjúkdóminn: ,,Uppgrafinn af Hólamönnum Gvöndur Þorkelsson Loki, afstungið höfuð, síðan brenndur. Kom það til af því að sá Guðmundur var gamall orðinn, illorður og ,,leiðendur"; vildi eiga hreppsvist í Hjaltadal, en Þorkell Gamlason, Hólaráðsmaður, var hreppsins forsvar með öðrum hreppstjórum og náði sagður Gvöndur ekki hreppnum. Hafði hann þá heitingarorð við Þorkel eður hans niðja”.
Síðar í frásögninni kemur fram að sá sem fyrir aðsókninni varð skyldi ganga á milli bols og höfuðs á draugnum og þá myndi ónæðinu ljúka. Þessu fór fram í kirkjugarðinum að Goðdölum.
Íslendingabók segir Þorkel vera Gamalíelsson, en ekki Gamlason.

Með konunglegri foroðningu bannaði Kristján IV. 1609og oftar að brenna lík og ganga milli bols og höfuðs en því var ekki hlýtt og er t.d. þekkt dæmi heilli öld síðar frá Hrútafirði. Þar leyfði sm. Lárus Gottrup manni að fremja þetta verk af því að sá framliðni hafi haft í heitingum um að sækja að honum dauður.

(1787, 1800). (Frásagnir Árna Óla, útg. 1955, bls. 243).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Uppvakningum og niðurkveðningum hélt fram til miðrar 19. aldar (sjá 1612) skv. Vökulokum Guðjóns Ólafssonar (1853-1918) bls. 70 og 109, útg. Sögufélag Árnesinga 2009.

Frá fornu fari tókust Íslendingar á við drauga og höfðu oftast betur hvort sem var með vopnum á 10. öld, þ.e., Þorgils örrabeinsstjúpur í Flóamannasögu, eldi, sami Þorgils, eða kvæðum, Jón lærði Guðmundsson, sjá hér 1612, eða kröftum, Grettir Ásmundarson.
Hér, við 1800, höfðu þó tveir draugar betur enda við hungrað og illa klætt barn að eiga.

Nítjándualdardrauginn Írafells-Móra sem hafði engin mannslíf á samviskunni, en drap þeim mun fleiri skepnur, kvað séra Jón Benediktsson niður á Svalbarði í Þistilfirði um 1838, skv. Þistlum, bls. 54, og þurfti þá ekki lengur að skammta honum á málum jafnt og presti.
Hafa má í huga að séra Jón var Vestfirðingur úr Skutulsfirði og Arnarfirði. Móðir hans var föðursystir Jóns forseta.
Aðrar heimildir segja Írafells-Móra þó hafa fylgt séra Jóni alla tíð um prestaköllin, sem urðu 6, eða þó öllu heldur konu hans, frú Guðrúnu Kortsdóttur frá Möðruvöllum í Kjós, alla leið til Hrafnseyrar 1861, en þar þjónaði maður hennar síðast. Guðrún var, eins og áður sagði, ættuð frá Möðruvöllum í Kjós, en Írafell er í sömu sveit.

Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1597Guðbrandur biskup tók sér tak1599 →Þá kom loksins að því að