Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1599
1599
1599

Þá kom loksins að því að

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn lái öðrum frekt – Bj.Þ. 831

ÞÞá kom loksins að því aðeinhver fengi í hyljum baðþess finna í dómnum Stóra- staðað stórsyndugum ber það.

Bræðurnir höfðu báðir þekktbarnsmóðurina, en sjá!Hvorugan sakaði en henni var drekktí hylnum í Bakkárholtsá.

Glúmur Gylfason · 1599

Heimildir og samhengi

Konu drekkt í Bakkárholtsá í Ölfusi. Hafði fallið með tveimur bræðrum. Þetta gæti verið fyrsta aftaka fyrir blóðskömm skv. Stóradómi 1564, sem vitað er um með vissu, sjá þó 1573. Heimild: Fitjaannáll, bls. 90.
Tilvísun: Sigrún Hannesdóttir og Steinunn Kristjánsdóttir: Dysjar hinna dæmdu, bls. 7 í áfangaskýrslu frá 2019:
SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)

Guðbrandur Hólabiskup Þorláksson stóð í langvinnum erfðadeilum og átti þar lm. Jóni Jónssyni að mæta. Biskup þóttist finna þarna veikan blett á lögmanni og gagnrýndi slælega framgöngu valdsmanna við að framfylgja Stóradómi og fékk kóng til að ítreka dóminn 1585.

Már Jónsson: Blóðskömm á Íslandi, bls. 125: ,,það sem skipti leikmenn mestu máli var túlkun og framkvæmd laganna, ekki bókstafur þeirra ... þrátt fyrir ítrekanir konungs var veraldlegum ráðamönnum illa við líflát... en biskupi tókst með áróðri við konung að girða fyrir möguleika á mildun þegar blóðskömm var annars vegar”.
Enn fremur á bls. 121: ,,Kirkjunnar menn jafnt sem veraldlegir ráðamenn kepptu um hylli konungs í því skyni að ráða sem mestu í landinu. Ekki var hikað við að rægja andstæðinga og freista þess að koma fram breytingum þeim í óhag”.

(Sjá 1606, 1620 og 1702 Jón Aðils).

Myndir

← 1598Hjuggu bolnum höfuð frá1600 →16. öld - yfirlit A