Kóngurinn í snúning snar
Lag Nú er Gunna á nýju skónum
Kóngurinn í snúning snarsnjall í pólitíkþegar eyri ekkjunnarásælist í Vík.
,,Langt væri ei til Laugarvatnsþar létt að skola og þvoen lands útnári, rófa og rass,sé Reykjavíkin, sko!"
Heimildir og samhengi
Fyrir 60 hundraða jörðina Vík (Reykjavík) fékk Guðrún Magnúsdóttir f. 1540, ekkja sm. Narfa Ormssonar (~1540, d. eftir 1607, en fyrir 1613) af kóngi: Kiðafell í Kjós, Bakka á Kjalarnesi og Laugarvatn. Afsal útgefið 1615.
Þetta var greiðsla fyrir 50 hundruð í Vík, en 1590 - meðan Narfi var á lífi - hafði þáverandi hm., Kruse, fengið hann til að selja kóngi 10 hundruð úr jörðinni en hótaði gapastokk ella.
Vík ásamt Arnarhóli, Hlíðarhúsum, Seli og Skildinganesi, taldist 60 hundruð, en meðaljörð var 20 hndr.
1751 urðu þessi kaup til þess að Skúli Magnússon fékk hluta af Vík af kóngi fyrir Innréttingarnar. Húsið að Aðalstræti 10 er það eina sem eftir er af Innréttingunum.
Um Vík, sjá 1803.
Heimildir: Vesturbæjarblaðið des. 2012 bls. 16.
Vefurarnastofnun.is (opnast í nýjum flipa)