Eftir honum margur man
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Eftir honum margur manmaðurinn í Eyjumgentel þótti ei Gentelmanþá gekk í skrokk á peyjum.
Heimildir og samhengi
Enskur sjóræningi, John Gentelman og skipshöfn hans, hélt Heimaey í gíslingu 14 daga.
Fitjaannáll II, 98: ,,Rán og skemmdir peninga í Vestmannaeyjum og svo víða kringum Ísland, af útlenskum reyfurum. Sá hét Jón Gentilmann sem rændi Vestmannaeyjar. Hann tók þá stóru klukku frá Landakirkju og festi upp í kaðlana á skipið, hverju hann rænt og stolið hafði, sigldi svo út með hana. En þá til Englands kom var hann drepinn og hans menn allir. En með því á þessari klukku stóð hverri kirkju hún tilheyrði á Íslandi var hún af Englandskongi send aptur til Vestmannaeyja þá er hún hafði þar verið í 3 ár. Og er þessi sama stóra klukka þar í Landakirkju enn í dag”.
,,Talið er að eldri klukkan, sú sem send var til baka frá Englandi, hafi verið seld árið 1743 fyrir 68 ríkisdali og ný klukka keypt í staðinn", segir á slóðinni Vefurkirkjuklukkur.is (opnast í nýjum flipa)
sem rekur sögu klukkna í Landakirkju.
Vestmannaeyingar urðu e.t.v. fyrst fyrir barðinu á erlendum víkingum 1396/7:
Annálar þá: ,,Helsleginn Þórður Árnason í Vestmannaeyjum saklaus af útlenskum kaupmönnum og urðu þar margir aðrir stórir áverkar".