Guðbrandur sig burtu bjó
Lag Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831
Guðbrandur sig burtu bjóbiskup aldurhniginnmeð ,,Tyrkjum” aðrir sigldu sjósuðu'r í barbaríin.
Varlega trúðu Arngríms eiðóvissan er tölduklerkdómurinn boða´ ei beiðtil biskups Þorlák völdu. .
Heimildir og samhengi
+ Guðbrandur Þorláksson f. ~1541, Hólabiskup frá 1571 til dd.
Arngrímur lærði Jónsson (1568-1648) hafði frá 1596 verið konungsskipaður aðstoðarmaður Guðbrands í biskupsstörfum og síðustu ár hans officialis og gegnt þeim öllum.
Prestar nefndu hann því fyrstan sem biskupsefni 20. ág. 1627 ,,en hann skoraðist undan" segir Páll Eggert Ólason. Ekki var frekar eftir leitað en Þorlákur Skúlason (1597 – 4. janúar 1656) tilnefndur. Móðir hans, Steinunn, var laundóttir Guðbrands biskups.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Um 300 Íslendingum af Austfjörðum, úr Grindavík og Vestmannaeyjum rænt í Tyrkjaráni. Ræningjarnir komu frá Sale í Marokkó.. ,,Tyrkir" var þá samheiti fyrir islamstrúarmenn, a.m.k. þá sem heyrðu undir Tyrkjasoldán.
Talið er víst að Alsíringum hafi borist njósn af fjarveru danskra herskipa af Íslandsströndum og Færeyja og því lagt til atlögu þar einmitt þegar Kristján IV. hafði herskip sín í syðri botni Eystrasalts af því að hann langaði til að vera með í 30 ára stríðinu.
Sjá umfjöllun Helga Þorlákssonar: Á sögustöðum, bls. 84-85.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Sjá: Vefur (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Frá árinu 845 t.o.m. 994 eru til þýskar heimildir um ránsferðir skandinavískra víkinga þangað - segir Der Spiegel Geschichte nr. 5, 2022, bls.43-44.
Víkingar rændu bæði verðmætum og fólki, sem látið var laust gegn háu gjaldi, sem safna mátti á stóru svæði ef um æðristéttarpersónu var að ræða.
Fæstir gátu keypt sig lausa en voru boðnir upp á þrælamörkuðum og/eða enduðu þannig í víkinganýlendunum á N-Atlantshafseyjunum einkum Íslandi. Húsbændur eðluðu sig með kvenþrælum enda eru um 63% íslenskra kvenna með skosk eða írsk erfðaefni.
Í ránsferðum allt til Miðjarðarhafs, voru þúsundir slíkra norðurevrópskra gísla árlega seldar til þrælkunar í Egyptalandi, Miklagarði og Bagdad á meðan víkingaöldin stóð. Myntir grafnar úr jörð á Norðurlöndum eru meðal gagna sem styrkja þessar ályktanir Der Spiegel og heimildarmanns blaðsins, sem er forstjóri víkingasafnsins Haithabu í Schleswig, M. S. Toplak.
Allar aðfarir víkinga voru hinar sömu og þeirra sem rændu á Íslandi 1579 og 1627.