Dætur Gísla í Tungu tvær
Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið
Dætur Gísla í Tungu tværteljum kosti bestaaf Eggert misjafnt þágan þværen Þorlákur á með presta.
Heimildir og samhengi
Kristín (1610-1694) og Valgerður, d. 1702, dætur lm. Gísla Hákonarsonar (1583-1631) í Bræðratungu, lofaðar samdægurs, 31/7. Kristín: Þorláki Skúlasyni (1597-1656) Hólabiskupi 1628 til dd. en Valgerður: sm. Eggert ríka Björnssyni (1612-1681), síðar á Skarði, Skarðsströnd. Formlegar festar Valgerðar 18/9 1632 og gifting 28/9 (Annáll III, 260).
Hermt er að sm. Björn Magnússon (prúða) í Saurbæ, Rs. hafi verið búinn að tryggja Eggert syni sínum Kristínu, en sama dag og þeir feðgar voru væntanlegir til Bræðratungu hafi nýi Hólabiskupinn knúið þar dyra sömu erinda. Gísli sá ráð: reið til móts við Saurbæjarfeðgana niður í Grímsnes og kom í ljós að þeim var alveg sama hvor stúlkan var enda höfðu hjónaleysin aldrei sést og heimanmundur og arfur þeir sömu hvor systranna sem var.
Þága: þénusta, hagnaður.
Menningarblað/Lesbók Morgunblaðsins 31. okt. 1998. Hluti úr samantekt Gísla Sigurðssonar:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Sérstakur og fáheyrður vandi hafði komið upp í Bræðratungu. Þegar sendiboði kom að norðan með bónorð biskupsins stóð svo afleitlega á að heimasætan í Tungu var heitbundin Eggerti Björnssyni á Skarði og þeir feðgar lagðir af stað að vestan til að vitja meyjarmála. Ráðahagurinn að norðan þótti þyngri á metum; þar að auki afþakkaði maður ekki slíkt tilboð frá sjálfum Hólabiskupi. Gísli lögmaður í Tungu hefði þegið að hafa eitthvað af nútíma fjarskiptatækni, en eins og á stóð tók hann þann kost að ríða sjálfur á móti Skarðsmönnum. Eins gott að hann átti fleiri dætur og sættust menn á að Eggert fengi eina yngri, svona þegar hún væri komin af barnsaldri. Við það var staðið.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
SLÓÐ á mynd M. V. Lund af Skarðsstöð og Skarði
Myndssl.c.photoshelter.com (opnast í nýjum flipa)