Oftar hafði Engilbert
Lag Dvel ég í draumahöll
Oftar hafði Engilbertorðið sög að hvetjabreddu sinnar bitið skerptog blóðrás mátt við etjaaf bræðrum fjóra fætur skarað fjöri mættu haldafylgdu og með fingur þarfrostsins hlutu gjalda.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, 12: ,,Kól hendur og fætur Gísla og Markúsar Bjarnasona svo af þeim voru sagaðir fæturnir á Þingvöllum og voru þar lengi í græðslu. Þeir riðu um veturinn frá Fitjum í Skorradal austur yfir fjall. Slíkt frost hafði ei komið í manna minnum sem þann sunnudag (29/11). Þeir höfðu fyrst hleypt hesti sínum ofan í Eiríksvatn og vættu sig á höndum og fótum er þeir voru að draga hestinn upp úr. Eptir það drukku þeir brennivín sér til hita en fengu ógóða færð og dösuðust. Svo sofnuðu þeir og vöknuðu við frosin bein, gátu svo með harmkvælum skriðið og velt sér að Svartagili, Þingvallakoti einu. Þá hélt þann stað séra Engilbert Nikulásson. Síðan er þeir voru græddir gengu þeir á tréfótum; fingurnir voru og af Markúsi flestir nema litlir stúfar fyrir sumum fingrunum, en þó gat hann skrifað”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Markús varð lrm. og óðalsbóndi á Stokkseyri enda var hann 4. maður í beinan karllegg frá Torfa í Klofa Jónssyni, Ólafssonar Loftssonar ríka Guttormssonar og þaðan beinn karlleggur til Auðar djúpúðgu Ketilsdóttur flatnefs, Bjarnarsonar bunu. Karlleggur frá Torfa í Klofa hafði átt Stokkseyri.
Markús fékk Guðrúnar, dóttur sm. Torfa Erlendssonar (1660), þau foreldrar Þórdísar – Stokkseyrar-Dísu (1668-1728), sem getið er hér m.a. í yfirliti 17. aldar og við1644 og 1682.
Gísli var afi alnafna síns, hvers föt í kistu báru með sér bóluna frá útlöndum 1707.
Önnur heimild: Vigfús Guðmundsson, Saga Eyrarbakka I, 186.
Frá sambærilegum atburði, ,,Af Ásmundi fótalausa”, segir í Þistlum, sögur og munnmæli úr Þistilfirði, útg. 2010, bls. 27 og gerist sá atburður 1868.
Frá séra Engilbert Nikulássyni, d. 1668 tæplega sjötugur, sem Þingvallaprestur var í 51 ár, segir sr. Ágúst Sigurðsson í Fornum frægðarsetrum lll, frá bls.114.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)