Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1630
1630
1630

Ávaxta pund sitt Oddur kann

Hljóðbrot0:00

Lag Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

ÁÁvaxta pund sitt Oddur kannekki deyr hann snauður.Suðurlandsskjálfti og Skálholt brannskapstór biskup dauður.

Glúmur Gylfason · 1630

Heimildir og samhengi

Skálhot brann 24/2 nema kirkjan;
Þar brunnu skjöl, bækur og fornrit sem Oddur biskup hafði safnað.
Gísli ,,sterki” Oddsson varð Skálholtsbiskup eftir föður sinn.
Heimild m.a. Fitjaannáll II, frá bls. 113:

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Oddur biskup Einarsson lést 28/12, fæddist 1559 á Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem sr. Einar Sigurðsson, faðir hans, var aðstoðarprestur. Frá 6 ára aldri til þess er Oddur settist í Hólaskóla var heimili hans í Nesi í Aðaldal. Biskup var Oddur kjörinn 29 ára. Hann hafði því spáð að skammt yrði milli þeirra lm. Gísla Hákonarsonar í Bræðratungu sem dó 47 ára 12/2 1631.

Fitjaannáll: ,,Við gröpt biskupsins, herra Odds, tók lögmaðurinn sína banasótt.” Oddur hlýtur mörg og fögur eftirmæli hjá nafna sínum og sonarsyni, Oddi Eiríkssyni, sem ritar einnig í annálnum: ,,Hann var svo geðstilltur að hann hafði aldrei slegið sína sveina eða þá sem honum þjónuðu”.
Á þeim tíma og í tvær næstu aldir þóttu hirtingar sjálfsagðar og vöndurinn ómissandi brúðargjöf.

Í þjóðsögum og (Fitja)annál er hermt hve forspár Oddur biskup Einarsson á að hafa verið. Stundum er það rakið til stjörnuþekkingar þeirrar er hann nam hjá Tycho Brahe. Eitt er það í sögum, að hann segði Ragnheiði Pálsdóttur fyrir um biskupsdóm Brynjólfs sonar hennar Sveinssonar sem þá var í móðurlífi.

Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar XI, 13 og Frásagnir af Austurlandi, bls. 155: ,,Biskup (Oddur) sat eitt sinn hugsi en segir svo (við smásveininn Sigfús Tómasson (~1601-1685), síðar prest, Hofteigi): ,,Viltu vita hvað konuefnið þitt er nú að gera, drengur? ... hún er dóttir hans Eiríks (ríka) í Bót í Hróarstungu, er hún nú að reka lömb á fjall og hleypur all- ókvenlega".
Kristín Eiríksdóttir frá Bót varð kona séra Sigfúsar. Eignuðust þau ellefu börn sem komust til aldurs, þar af tveir prestar. (Ísl. æviskrár).

Benedikt Gíslason frá Hofteigi rökstyður í ,,Fólk og saga" það álit sitt, að afkomendum Odds hafi þótt full ástæða til að fegra minningu hans í Fitjaannál, og tekur Benedikt undir það með Páli Eggert Ólasyni, að skólavist hafi honum óskyldir vart fengið nema með mútum og kennslan stundum bág, t.d. þegar bróðir hans, Gísli (1596, 1636) var skólameistari og bestu brauð áttu ættingjar hans vís og það án þeirrar kvaðar að vera styrkur/skjól fátækum uppgjafaprestum eins og kirkjulög ákváðu þeim brauðum og báru þá minna megandi prestar þá byrði.
Páll Eggert Ólason, Íslenskar æviskrár I,449; um framfæri uppgjafaprests: ,, ... sneyddi þá hjá söðum sem frændur hans héldu og var lagt út biskupi til vaansæmdar".

Tilvísanir: Páll Eggert Ólason: Saga Íslendinga V, 34; Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 73.

Á bls. 15 í ævisögu Helgu Sörensdóttur nefnir Jón Sigurðsson frá Ystafelli þá sögn, að allir Íslendingar geti rakið ætt sína til sr. Einars Sigurðssonar.
Svari nú hver fyrri sig, hvort það sem fram kemur hér í umfjölluninni, sem og í vísunni 1590, styrki þá sögn.

Myndir

← 1629Oftar hafði Engilbert1631 →Við biskupsgröf tók Gísli sótt