Á áramótum áður ról
Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619
Á áramótum áður ról- einatt voru á reiki -nú átta dögum eftir jólað eigi framar skeiki.
Heimildir og samhengi
Kristján IV. kemur reglu á áramót á Íslandi. Þau voru áður á reiki.
Gunnar Karlsson, Inngangur að miðöldum, 302: ,,Um ársupphaf var lengi mikill ruglingur í Evrópu á miðöldum. Sumir létu árið byrja 1. janúar, aðrir 1. mars, 25. mars (boðunardag Maríu), 1. september, 25. desember eða á páskum".
Gunnar segir Ara fróða líklega setja áramót 1. september. (Inngangur að miðöldum, 304), sem valdið hefur ruglingnum á kristnitökuárinu 999/1000.
Með þeirri tilskipun kóngs að byrja árið 1622 laugardaginn 1. janúar var farið að rómverskum hætti frá 1582-sjá þar..
Sá eldri háttur að byrja árið í mars sést enn á nöfnum fjögurra síðustu mánaða ársins.
Fram á 20. öld töldu þó margir sem fæddir voru á 19. öld aldur í vetrum og miðuðu afmæli og viðburði við vikudag í sumri eða vetri.
Enn fremur um tímatal, sjá 1582og 1700.