Á Héraði austur um hjarn og snæ
Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Á Héraði austur um hjarn og snæhópur bjarna genguren öðrum vestra, Birni í Bæborinn frækinn drengur. .
Rækta mun ei reyr og störum rósir vel þótt sýslien byggi, kúmeni', hampi og hörhampar Vísi-Gísli.
Heimildir og samhengi
Annálar segja frá því að hvítabirnir gengju á land eystra og hópur þeirra á hjarni allt upp á Hérað áður en unnið varð á þeim.
Hér þarf að skruna örlítið niður:
Vefurfeber.se (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fæðast þetta ár tveir frumherjar, annar í þilskipaútgerð 1647: sr. Páll Björnsson, hinn í ræktun: sm. Vísi-Gísli Magnússon.
* Páll, síðar prestur og fornmálagarpur í Selárdal, var sonur Björns sm. Saurbæ á Rauðasandi og síðari konu hans, Helgu Arngrímsdóttur, lærða. Föðurbróðir Páls var Þorleifur sm. Hlíðarenda, tengdafaðir Vísa-Gísla. Þeir Þorleifur og Björn voru synir Magnúsar prúða og Ragnheiðar Eggertsdóttur lm. Hannessonar hstj. (1642). Um Pál er fjallað við dánarár hans, 1706. og 1647.
* Vísi-Gísli, sonur Magnúsar lm. Björnssonar og Guðrúnar Gísladóttur lm. Þórðarsonar lm. Guðmundssonar. Föðuramma Vísa-Gísla var Elín Pálsdóttir (Staðarhóls, 1558).
Vísa-Gísla - sem og dóttur hans, Guðríðar, biskupsfrúar Þórðar í Skálholti - er minnst fyrir frumkvæði í ræktun, korntegunda, m.m. Gísli sáði 30 dönskum nytjajurtum auk íslenskra hjá foreldrum sínum að Munkaþverá. Á Hlíðarenda sáði hann m.a: káli, ertum, salati, og rófum auk þeirra sem nefndar eru i erindinu. Hann sóttist eftir kartöfluútsæði frá Danmörk en þær voru þá enn ekki komnar þangað. (Sjá 16720.0.6.136 (opnast í nýjum flipa)). Hjá samtímaskáldinu, sr. Hallgrími Péturssyni, í ,,Um dauðans óvissan tíma", voru rósir í meiri metum en reyr og stör.
Ísl. æviskrár II,67, um Gísla: ,,hann var manna mestur höfðingi um sína daga á Íslandi enda stórauðugur, lærður vel og margfróður ...veglyndur og góðgerðasamur. Hann hafði mikinn áhuga á viðreisn Íslands, verklegum framkvæmdum (brennisteinsnámi), náttúruvísindum og búnaðarfræði og gerði tilraunir með kornrækt á Hlíðarenda".
Heimildir og tilvísanir: Guðni Ingólfsson bls. 150 í ,,Frumkvöðull vísinda og mennta"; Páll Eggert Ólason: Íslenskar æviskrár; Saga Íslendinga V, 382-393 um Gísla og um Pál þar á bls. 245-248.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)