Skulu sýslumenn sverja eiða
Lag Enginn þarf að óttast síður
Skulu sýslumenn sverja eiðasínum kóngi trúnað greiðaGuðbrands þóttu málin meiðamá af hendi fúlgu reiða.
Heimildir og samhengi
Skv. Alþingisbók 1620, bls. 50 er með nýjum hirðstjóra, H. Rosenkrantz, gerð þriðja tilraun til að fá sýslumenn til að sverja kóngi hollustueið: ,,höfðu valdsmenn mælt því á móti" áður. En nú ,,söru velflestir sýslumenn í lögriettu sumir med öllu ödrucknir, sumir med öllu vel drucknir".
Guðbrandur biskup sakfelldur í morðbréfamálum og greiði í sekt, 2.000 rd.
Þarna lýkur sögu sem hófst 2. febrúar 1497, er móðurafi Guðbrands, Jón Sigmundsson, kvæntist Björg Þorvaldsdóttur. Systir hans, Bergljót, varð ósátt við bróður sinn 1505 vegna jarðakaupa. Hún þóttist og vanhaldin í erfðum segir Arnór Sigurjónsson í Vestfirðingasögu - og var það, segir Sverrir Kristjánsson á bls. 79 í Gamlar slóðir. Blandaði hún sér þá í léttvægar deilur Jóns við Hólastól um málnytukúgildi með því að votta fyrir biskupi, Gottskálk Nikulássyni, að Jón og Björg væru fjórmenningar (sem sýnist rétt, sjá síðar). Upphófst þá eitt versta manngerða gjörningaveður Íslandssögunnar með eignaupptöku og bannfæringum á Jón Sigmundsson, Einar, vangefinn son hans, og lm. Teit Þorleifsson, meiðingum og drápi á Sveinsstaðafundi 1522 og misþyrmingum manna og dýra í Bjarnarnesreiðum Jóns Arasonar og sona, og átökum Guðbrands við að endurheimta margseldar jarðir frá liðinni öld. Þar átti hann einkum í höggi við Jón Jónsson lögmann og þá frændur frá Svalbarði í Eyjafirði, sjá m.a. 1609, 1577, 1578, 1561.
Uppnefni það sem hann gaf Gottskálk Nikulássyni ,,hinn grimmi", lifir enn fyrir atbeina námsbókar.
Skv. bók kaþólsks prófessors, Guðbrands Jónssonar frá 1950, ,,Herra Jón Arason", þá fól Gottskálk á banasæng tveimur próföstum að leysa Einar, son Jóns Sigmundssonar, úr banni sem á hann var lesið fyrir að hafa unglingur umgengist föður sinn bannfærðan. Verðandi biskup, Jón Arason, kom í veg fyrir það og ónýtti hinstu ósk manns sem á banasæng iðraðist græðgi sinnar.
Lm. Jón hafði nefnilega beðið lm. Teit Þorleifsson að sjá til með sínum vangefna syni að sér látnum en þar sá herra Jón Arason fjár von ef Teitur umgengist Einar bannfærðan.
Herra Jón Arason varð þjóðfrelsishetja og honum reist minnismerki í þremur sýslum, en Gottskálk varð ,,hinn grimmi".
Guðbrandur var dæmdur fyrir að fara offari í svonefndu Morðbréfamáli, sem var hluti af erfðamáli hans gegn Hólastól sem hann, biskupinn, stóð þó fyrir og varði gegn sömu kröfum annarra erfingja. Þegar prestur á Bergsstöðum, stóð vegna kirku sinnar í landamerkjadeilu við tengdason Guðbrands, Skúla Einarsson á Eiríksstöðum, þá stóð Guðbrandur með dóttur sinni og tengdasyni og gekk svo langt að hann, biskupinn, vék prestinum frá embætti um stundarsakir. Sjá Íslenskar æviskrár I, 270.
Skv. ættfræðingunum Klemens Jónssyni og Páli Eggert Ólasyni voru Björg og lm. Jón Sigmundsson að öllum líkindum fjórmenningar, sem var ólöglegt á þeim tíma. Þó voru Björn Jórsalafari Einarsson, langafi Jóns og Ingigerður Einarsdóttir, langamma Bjargar líklegast aðeins hálfsystkin.
Á Bessastöðum 1569 í nýjum sið, sem misst hafði dómsvald í siðferðismálum, dæmdi lm. Ormur Sturluson hjónaband Bjargar Þorvaldsdóttur og Jóns Sigmundssonar frá 1497 gott og gilt með samþykki hm. C. Walkendorphs. (Alþingisbók, I, 41-43). Þar með opnaðist Guðbrandi leið að arfinum.
Græðgin sem lýsir sér í öðrum erfðadeilum 16. aldar, Grundar- og Möðruvallamálum, á rætur í svartadauða 1494 til 1496.
Heimildir og tilvísanir:
Guðbrandur Jónsson: Herra Jón Arason, 1950;
Arnór Sigurjónsson: Vestfirðingasaga, 1975;
Klemenz Jónsson, Grund, bls. 123;
Páll Eggert Ólason, Menn og menntir III, bls. 588.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)