Gudda kona ekki ein
Lag 10 litlir negrastrákar
Gudda kona ekki einer hún gekk á landheppin víst að vera sein.Vissi að beisla gand?
Á kýrverð metin sextug sexog sexí þótti veraen sumir meintu hana hexsem hefði krækt í séra.
Rosmhvelingar rex og pexriða í bland við netinþá Hallgríms ljóða' er hróður vexmun hlutur Guddu metinn.
Heimildir og samhengi
Alsíringar rændu um 300 Íslendingum árið 1627.
37 þeirra voru keyptir út og komust til Kaupmannahafnar. Þetta ár komu 27 til Íslands aftur. Þeirra á meðal Guðríður Símonardóttir (1598-1682), vanfær af völdum Hallgríms Péturssonar (1614-1674), en þau hlutu væga sekt þar sem maður hennar hafði farist með Vestmannaeyjabáti um veturinn. Lausnargjald hennar var hvað hæst og hefur verið umreiknað til ~60 kýrverða.
Samtímadóma hlaut Guðríður misjafna og lengi síðan nefnd Tyrkja-Gudda. Trúað var að girndarráð væru þannig til komin að kona beitti töfrum til að seiða til sín karlmann.
Allt fram á 19. öld þurfti lítið til að fá á sig galdraorð og í tilviki Guðríðar þurfti ekki vitnanna við: roskin kona heillar til sín ungan mann og illveður grandar báti eiginmanns hennar.
Á Vísindavefnum stendur ritað:
,,Árið 1644 var Hallgrímur vígður til prests á Hvalsnesi (Rosmhvalanesi) og mun hann þar hafa notið síns forna velgjörðarmanns, Brynjólfs biskups. Heldur vænkaðist hagur þeirra hjóna við það en sagnir herma að sambúð Hallgríms við stórbokka og auðuga útvegsbændur í nágrenninu hafi þó verið heldur brösótt og hann þá stundum látið fjúka í kviðlingum". (AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)).
Sjá 1644.
Rosmhvalanes, þ.e., rostunganes.
Hallgrímur þjónaði Halsnesþingum þangað til honum var veittur SaurbærVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa) á Hvalfjarðarströnd árið 1651.
Karl Sigurbjörnsson, biskup, Í helgum steini, 326: ,,Það var Guðríður sem sat að síðustu við dánarbeð þjóðskáldsins og skrifaði upp andlátssálmana (Steinunnar, dóttur þeirra), þær óviðjafnanlegu perlur sem kynslóðunum urðu líkn og svölun í sjúkdómum og sorg. Guðríður, sem hefur verið svo afflutt, uppnefnd og rægð í þjóðsögum og munnmælum hins dómharða íslenska almannaróms, henni eigum við mikla þökk að gjalda." (1650).
Á bls. 353 í sömu bók endursegir dr. Karl neikvæðu þjóðsöguna af Guðríði og leggur út af henni.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Frá árinu 845 t.o.m. 994 eru til þýskar heimildir um ránsferðir skandinavískra víkinga þangað - segir Der Spiegel Geschichte nr. 5, 2022, bls.43-44.
Víkingar rændu bæði verðmætum og fólki, sem látið var laust gegn háu gjaldi, sem safna mátti á stóru svæði ef um æðristéttarpersónu var að ræða.
Fæstir gátu keypt sig lausa en voru boðnir upp á þrælamörkuðum og/eða enduðu þannig í víkinganýlendunum á N-Atlantshafseyjunum einkum Íslandi. Húsbændur eðluðu sig með kvenþrælum enda eru um 63% íslenskra kvenna með skosk eða írsk erfðaefni.
Í ránsferðum allt til Miðjarðarhafs, voru þúsundir slíkra norðurevrópskra gísla árlega seldar til þrælkunar í Egyptalandi, Miklagarði og Bagdad á meðan víkingaöldin stóð. Myntir grafnar úr jörð á Norðurlöndum eru meðal gagna sem styrkja þessar ályktanir Der Spiegel og heimildarmanns blaðsins, sem er forstjóri víkingasafnsins Haithabu í Schleswig, M. S. Toplak.
Allar aðfarir víkinga voru hinar sömu og þeirra sem rændu á Íslandi 1579 og 1627.