Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1638
1638
1638

Brugðið er til betri áttar

Hljóðbrot0:00

Lag Ætti eg hörpu

BBrugðið er til betri áttarbænheyrsla sú æðri máttarhlaða fyllt milli gafls og gáttarog gæftir þykja meiri háttar.

Glúmur Gylfason · 1638

Heimildir og samhengi

Deyja um þingtímann: Halldór lm. NV Ólafsson (1618, 1753) og Gísli, f. 1593, Skálholtsbiskup frá 1632Oddsson, biskups.

Auk Tyrkjaráns, Skálholtsbruna, eldingar í Bræðratungu, Heklugoss (1636) og draugagangs víða, þá hafði verið afar hart í ári á þeirra embættistíð en árferði til lands og sjávar var sagt fara eftir því hversu yfirvöld voru Guði þóknanleg. Gísli vildi vera fyrri til og samdi harðort áminningarbréf til safnaðanna og kenndi ógulegum lifnaði þjóðarinnar um hversu komið var tíðarfari.
En þá bregður svo við að tíð snarbatnar um leið og þeir lm. Halldór og biskup Gísli falla frá og Brynjólfur Sveinsson til biskups kjörinn og endist það góðæri á meðan hann lifir.

Annálar 1: 253 (Skarðsárannáll um árið 1638): ,, ...hlutir mjög miklir á Suðurnesjum, og austur um, svo í næstu 50 ár höfðu ekki slíkir orðið".

Gísli hefur verið stórvaxinn líkt og faðir hans og á að hafa borið kringum Skálholtskirkju hellu sem afrenndir gátu rétt hafið upp á kné sér.
(Annálar; Öldin 17. Þar á bls. 82-83 má sjá hirðisbréf Gísla).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1637Gudda kona ekki ein1639 →Hið háa alþing út gaf lista