Stokkseyri af stendur logi
Lag Varnæs' Sølvbryllupssang:
Femogtyve år er gået
Stokkseyri af stendur logistærsti bruni austur þarburtu reistur Bjarni af Vogibest var glíma SigurðarJón Magnússon vér megum sýtameterologisk stasjón nýsvo enginn þarf til lofts að lítaLeifs og Hamborgarsinfoní.
Bjarni frá Vogi vildi slástvið þá dönsku og einatt kljástsíðar tók að fást við Faustog fórst það honum langtum skást.
Heimildir og samhengi
7 hús brunnu til kaldra kola á Stokkseyri 9. desember. Upptök eldsins í verslunarhúsinu Ingólfur þóttu jafnvel grunsamlegri en í húsi á Eyrarbakka, tengdu sama félagi, sem brann 1914. Sjá þar og 1892, um Grím Gíslason. (Öldin okkar).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
+ Bjarni Jónsson frá Vogi f. 1863.
Bjarni frá Vogi, danskmenntaður bókmenntafræðingur, var mikilmenni í mörgu og verður e.t.v. lengst minnst fyri að þýða Faust eftir Göte (Goethe) með rími, stuðlum og höfuðstöfum í 278 bls. bók sem út kom 1920. Bjarni var fremstur í fylkingu Skúla Thoroddsen sem felldi ,,Uppkastið" 1908 og vandaði Dönum ekki kveðjurnar í ræðu frá svölum alþingishússins 17. júní 1914. Í ævisögu bróður hans, séra Magnúsar Blöndal, er hann sagður fórnarlamb skólayfirvalda, sem viku honum frá kennarastóli við Lærðaskólann. Brottreksturinn tengdist þó óbeint því snjalla orði sem hann, áhorfandi að knattleikjum skólasveina á Melunum, fann á leik þeirra, ,,knattspyrna", og breyttist þá Fótboltafélag Reykjavíkur í Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR.. Sjá 1832, 1899, 1908, 1914, 1925);
Sigurður Greipsson í Haukadal (1897-1985), lagði alla andstæðinga og sigraði í Íslandsglímunni 5ta árið í röð. Hlaut aðeins eina byltu í öllum þeim hólmgöngum. Hann var gagnfræðingur frá Flensborg, búfræðingur frá Hólum, var eitt ár við lýðháskólann í Voss, Noregi og átti námsdvöl í Ollerup.
Sigurður rak (íþrótta)skóla að Geysi í Haukadal frá hausti 1927 í 43 ár sem um 900 nemendur sóttu.
Heimildir: Páll Lýðsson: Sigurður Greipsson og Haukadalskólinn; Skagfirsk fræði 2004, Úr fórum Fljótamanns - Minningar eftir Pál Sigurðsson frá Lundi; Bændablaðið 4. tbl. 2020, bls. 24.
Jón Magnússon, forsætisráðherra, lést á Norðfirði 23. júní. Hann var á leið til æskustöðvanna, Skorrastaðar - hafði siglt austur með Kristjáni kóngi X. og Alexöndru drottningu.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Dönsk veðurstofa var stofnuð 1872 og hafði frá þeim tíma haft umsjón með veðurathugunum á Íslandi þar til Þorkell Þorkelsson eðlisfræðingur var skipaður forstjóri veðurathugana hér á landi 1920, en hann var áður og jafnframt forstöðumaður Löggildingarstofu og var Veðurstofan deild í þeirri stofnun þar til 1926, þegar staðfest voru lög um Veðurstofu Íslands. Hún var til húsa hjá Löggildingarstofunni á Skólavörðustíg 3 þar til 1931, þegar hún fluttist í Landsímahúsið við Austurvöll og deildi 3ju hæðinni þar með Ríkisútvarpinu.
Heimild: Hilmar Garðarsson, Saga Veðurstofu Íslands, útg. 1999.
SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
1.-17. júní hélt Hamburger Philharmonisches Orchester tíu tónleika í Iðnó og Dómkirkjunni undir stjórn Jóns Leifs (1899-1968), einleikari Annie Leifs Riethof (1897-1970) í píanókonsert Wolfgangs A. Mozart nr. 23 í A dúr. (Öldin okkar). MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Reykjavík 1926, þögul kvikmynd:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)