Krani flytur kol í haug
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Krani flytur kol í haugkonum hverfur þreyta.Að Orbi Brandur engu laugopnuð Flóa'áveita.Framsókn, kerling, kemst á skriðkratar stuðning heitaþví ,,allt er betra en Íhaldið"sem engu kýs að breyta.
Heimildir og samhengi
Kol & salt, forstjóri Eldeyjar-Hjalti Jónsson (1894) reisir kolakranann við Reykjavíkurhöfn. Kolin voru frá um 1870 borin í pokum á baki upp brattar og hálar trébryggjur frá löndunarbátum sem sóttu þau út í skip á legunni. Eftir 1917 var kolunum ekið í hestvögnum og síðar á bílum frá hinni nýju Reykjavíkurhöfn.
Vigfús Guðmundsson, Æskudagar, 68: ,,Þó var kolauppskipun kvenna er mér fannst allra ömurlegust. Það var ekkert gleðiefni að sjá langar lestir kvenna upp bryggjur og upp í vöruhús rogandi með stóra kolapoka á baki”.
Kynsystir þeirra, bresk, sýnist ekki á myndinni hafa haft það betra.
Jón Birgir Pétursson, Meyvant á Eiði, bls. 68, segir frá því að verkamenn hafi sýnt mikla óánægju með komu kolakranans svo að við uppreisn lá, en þeir töldu hann taka frá sér vinnu.
Þá segist Meyvant á bls. 101 hafa bæði fengið kjaftshögg og þungar ákúrur frá verkamönnum sem sögðu hann eyðileggja fyrir sér vinnuna með því að útbúa handstýrðar sturtur á vörubíl sinn.
Kolakraninn rifinn 1968. Arftaki hans, Jakinn, reistur í Sundahöfn 1984 og enn stærri Jaki 2019. (Mbl. 2.5. 2019).
Guðbrandur (1888-1953) heiðursprófessor Jónsson, Forna, hitti Orbi & urbi, þ.e., Pius páfa XI., í Vatikaninu og var umræðuefni m.a. Flóaáveitan. Ritaði Guðbrandur þar um í Skírni og gaf út sérprentað í bók sem bar nafn páfans.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa).
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
Flóaáveituna mynda 300 km af skurðum sem veita vatni úr Hvítá við Brúnastaði niður yfir allan Flóann. Einnig 900 km flóðvarnargarðar.
1923 eftir 7 ára gröft sprengingar, brúasmíði og varnargarðahleðslu, var opnuð áveita úr Þjórsá um Skeið. Skurðir Skeiðaáveitunnar eru 65 km langir.
Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)
Sigurjón Erlingsson, Kirkjuvegsútgáfan 2014. Áveitan á Galtastöðum, Gormabók bls. 3:
,,Notkun áveitunnar á Galtastöðum er frá byrjun hennar 1927 og fram um eða yfir 1960 þegar túnstærð hefur gert hana óþarfa .....Á áveituenginu var slegið allt að 400 hestar á sumri og var skipt þannig, að ekki var slegið sama engið nema annð hvert ár. ..Við áveituvatnið breyttist sá gróður sem fyrir var, mosi og puntur hvarf og ...mýrarstör varð alls ráðandi. Talið var að fyrir áveituna hefðu fengist 5-7 hestar af hektara en 17 - 27 af áveitulandi. ...Röskur sláttumaður gat slegið allt að 20 hestburði á dag". (Þ.e., 1/2 kýrfóður).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jón Þorláksson stofnaði Íhaldsflokkinn ásamt 19 alþingismönnumWikiwand (opnast í nýjum flipa) sem höfðu átt aðild að BorgaraflokknumWikiwand (opnast í nýjum flipa) í AlþingiskosningunumWikiwand (opnast í nýjum flipa) 1923. Íhaldsflokkurinn var myndaður í andstöðu við Framsóknarflokkinn og AlWikiwand (opnast í nýjum flipa)þýðuflokkinn og hafði á stefnuskrá sinni að lækka álögur á fyrirtæki og leggja niður og sameina ríkisfyrirtæki og stofnanir. (Wikiwand).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Íhaldsflokk Jóns Þorlákssonar hafði skort tvo þingmenn til þess að hafa meirihluta eftir kosningar 1923. Þeir Bjarni frá Vogi, Jónsson, og Sigurður Eggerz lofuðu þá stuðningi sínum og virðast hafa sett það skilyrði að Jón Magnússon yrði forsætisráðherra. Jón Þorláksson varð fjármálaráðherra og hækkaði gengi krónunnar 1924. Jónas frá Hriflu segir í Aldir og augnablik II, 95, að þá hafi allt atvinnulíf í landinu lamast og Íhaldið tapað í kosningunum 1927.
Myndaði þá Tryggvi Þórhallsson (1889-1935) hreina Framsóknarstjórn með 19 þingsæti að baki, en með stuðningi Alþýðuflokks, sem hafði 5 þm. og Gunnars Sigurðssonar (1888-1962) frá Selalæk, þm. utan flokka (1931). Íhald hafði 16 þm.
Tryggvi er höfundur langlífa slagorðsins í 7. vísuorði. (Sjá 1933).
Framsókn er í spélni táknuð í líki roskinnar sveitakonu í peysufötum með svuntu.
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
Lengi var bændaþáttur í Ríkisútvarpinu sem hafði eftirfarandi einkennislag:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Einar Olgeirsson segir í Kraftaverk einnar kynslóðar, bls. 104, málum svo háttað á þessum árum, að sumir hafi ekki gert sér fyllilega grein fyrir muninum á Alþýðuflokknum og Framsóknarflokknum, en í augum íhaldsmanna voru þetta alltsaman bolsar. Jónas frá Hriflu segir íhaldið nefna þá umrótsflokka.
Á bls. 136 kemur fram hjá Einari, að kommúnistar - þá enn innan Alþýðuflokksins - hafi 1928 tekið að þjarma að flokksforystunni fyrir að styðja ríkisstjórnina. Nefna 10 hagsmuna- og réttindamál sem skilyrði fyrir stuðningi verkalýðsins.