Út þá Vefari Kiljans kemur
Út þá Vefari Kiljans kemurKristján skrifar: ,,LOKSINS!"Guðmundur aðra gagnrýni semur:,,galað smjörið strokksins".
(galað: töfrað, galdrað; lh. þt. hk. af so. gala).
Heimildir og samhengi
Um skáldsöguna Vefarinn mikli frá Kasmír eftir Halldór Kiljan Laxness, sem gefin var út 1927, voru ritaðir tveir mjög frægir ritdómar.
Annar þeirra var eftir Kristján Albertsson (opnast í nýjum flipa), sem skrifaði ritdóm upp á tíu blaðsíður sem birtist í tímaritinu Vöku:
„Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sem rís eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenzkrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld — það er blátt áfram skylda vor að viðurkenna það með fögnuði. Halldór K. Laxness hefir ritað þessa sögu á 24. aldursári sínu. Ég efast um að það komi fyrir einu sinni á aldarfjórðungi að skáld á þeim aldri semji jafn snjallt verk og þessi saga hans er. Á 64. gráðu norðlægrar breiddar hefir það aldrei fyr gerzt".
Hinn eftir Guðmund Finnbogason (opnast í nýjum flipa) í sama blaði sem var öllu styttri, og hljómar þannig:
„Vélstrokkað tilberasmjör. (opnast í nýjum flipa) G. F.“.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa): ,,Tilberi er kvikindi í íslenskri þjóðtrúWikiwand (opnast í nýjum flipa), einskonar sending, sem menn (aðallega konur) sköpuðu með hjálp galdra og fjölkynngi úr mannsrifiWikiwand (opnast í nýjum flipa), og geymdu á sér berum, oft vafið í gráan flóka. Tilberarnir voru notaðir til að laumast á næstu bæi og sjúga kýrWikiwand (opnast í nýjum flipa) og ærWikiwand (opnast í nýjum flipa) annars fólks og flytja heim mjólkinaWikiwand (opnast í nýjum flipa) í hús tilberamóður".
Sbr. m.a:AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Tilberasmjör: Vitaskuld var Halldór heima í erlendum bókmenntum, t.d. Strindberg, en hjá honum í Giftas, 1884, segir Stefán Einarsson bókmenntafræðingur, standi allt svart á hvítu, sem Laxness segi hneykslanlegast í Vefaranum.
(Skáldaþing, 103; Fjallkonan 16. mars 1885).
Vefurgljufrasteinn.is (opnast í nýjum flipa)
Þar segir m.a:
,,Með Vefaranum mikla frá Kasmír má segja að Halldór Laxness hafi sagt skilið við kaþólskuna sem hann hafði aðhyllst um nokkurra ára skeið".
Söguhetja Vefarans, Steinn Ellið, segir í 39. kafla: ,,Alt í lífi mínu er lýgi, Diljá, guð og djöfullinn, himinn og helvíti, alt lygi."
Sömu upptalningu, auk páfa og kaþólsku, má segja að HKL afneiti í síðari bókum fyrir eigin hönd og enn í Skáldatíma 1963, en þar bættist við kapítalismi, kommúnismi, Marxismi, Lenin, Stalín og Mammon.
Í Skáldatíma viðurkennir Halldór að Sovétvinátta hans hafi auk annars byggst á barnslegri trú. (Sigurður Hróarsson, HL og Sovétríkin, 163).
Á stórafmæli (80?) spurði sjónvarpsfréttamaður skáldið hvort hann væri búinn að afneita öllum sinum æskuhugsjónum. ,,Það ætla ég að vona" var svarið og vísaði til þess þroska sem tekinn skyldi út á langri ævi.
Sögulok Vefarans þykja benda til þess að merking nafnsins, Steinn Elliði, vísi til Péturs, postula Jesú. Hvort ELL-iði vísi til L-axness skal ósagt látið.