Í Íslandsglímu skötnum skellti
Lag Fór ég loks að finna kóng, BjÞ. 836
Í Íslandsglímu skötnum skelltií skólastarf sér helltiþar Sigurður Greipsson með Grettisbelti/Grettistaki velti.
Heimildir og samhengi
Sigurður Greipsson (1897-1985) frá Geysi í Haukadal, Biskupstungum, lagði alla andstæðinga og sigraði í Íslandsglímunni 1926 5ta árið í röð. Hlaut aðeins eina byltu í öllum þeim hólmgöngunum.
Sigurður var gagnfræðingur frá Flensborg í Hafnarfirði, búfræðingur frá Hólum, var eitt ár við lýðháskólann í Voss, Noregi og átti námsdvöl við íþróttaháskólann í Ollerup á Fjóni veturinn 1926 til 1927. Stofnaði það haust, byggði og rak, (íþrótta)skóla að Geysi í Haukadal sem starfaði í 43 ár og sóttu hann um 900 nemendur.
Grettisbeltið er farandverðlaunagripur sem keppt hefur verið um flest ár frá 1906:
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Í viðtali við Guðmund Daníelsson, ,,verkamenn í víngarði", bls. 172, segir Sigurður Greipsson að glímuáhugi hafi byrjað upp úr þjóðhátíðinni á Þingvöllum 1874. Á íþróttamótum ungmennafélaga, t.d. Skarphéðins (stofnað 1910) hafi glíman lengi hlotið mesta athygli. Íþróttagreinum hafi fjölgað, en ,,ungir menn mega ekki láta glímuna falla niður. Hún er þjóðararfur að sínu leyti eins og tungan og bókmenntirnar".
Heimildir: Páll Lýðsson: Sigurður Greipsson og Haukadalskólinn;
Skagfirsk fræði 2004, Úr fórum Fljótamanns - Minningar eftir Pál Sigurðsson frá Lundi;
Bændablaðið 4. tbl. 2020, bls. 24.
Sjá og 1926 og 1935.