Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1924
1924
1924

Blöðin ,,tóku að mögla og manga"

Hljóðbrot0:00

Lag Sólskríkjan mín situr þarna

BBlöðin ,,tóku að mögla og manga"- magnast alda -,,með Ingólfi vildu allar ganga"en engin gjalda.

Glúmur Gylfason · 1924

Heimildir og samhengi

Ingólfsstytta afhjúpuð á Arnarhóli.
Ekki hafði öldurnar lægt eftir Skrælingjasýninguna í Höfn 1905, þegar vitnaðist, 1906, að Kaupmannahafnarkommúna hygðist kosta og gefa Reykjavík Ingólfsstyttu sem Einar Jónsson (1874-1954) vann þar að. Risu þá upp blöðin, Ingólfur og Ísafold. Skyldi ekkert framar af Dönum þegið.
Til að standa fyrir innlendri fjársöfnun var leitað til Iðnaðarmannafélagsins, formaður Daninn(!) Knud Zimsen. Vegna þjóðernis- sögu- og trúardeilna og þverrandi hópeflis tók fjársöfnunin 18 ár.

Þegar efnt var til risahappdrættis – vinningur: 2ja hæða stórhýsi í Þingholtum - var móðurinn runninn af mönnum og seldust miðar svo dræmt að fresta varð drætti í 7 ár eða þar til danskir kaupmenn (af skömmum sínum?) keyptu óselda miða 1914, en ekki varð þó hagnaður af happdrættinu.
Vinninginn hlaut sá sem átti veglegasta húsið í hverfinu - biskup Íslands.
Heimildir:
1. vísuorð fengið frá Hallgrími Péturssyni.
3. vísuorð úr Vatnsdælu.
Ævisaga Knuds Zimsen: ,,Við Fjörð og Vík”, bls. 165-192.

Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til, M&M 2015, bls. 240.
Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, bls. 419.

Myndir

Einnig frá árinu 1924

  • Kynvillingur kærður var
  • Kommar auri ata
  • Ennþá vald í vöðvum býr
← 1924Kynvillingur kærður var1924 →Kommar auri ata