Ennþá vald í vöðvum býr

Ennþá vald í vöðvum býrvita fulltrúarsé í höfði hugsun rýrhnefar finna svar.

Glúmur Gylfason · 1924

Heimildir og samhengi

Engin kona var fáanleg til að taka sæti á framboðslista Alþýðuflokksins til bæjarstjórnarkosninga á þessum árum segir ,,Úr fjötrum", bls.84.

En konur buðu fram sinn eigin lista, sbr. eftirfarandi af vef Alþingis: ,,Fyrst var kona kjörin til Alþingis í landskjörinu 8. júlí 1922. Það var Ingibjörg H. Bjarnason af Kvennalista. Hún gekk svo í raðir íhaldsmanna og síðar sjálfstæðismanna. ... Guðrún Lárusdóttir varð fyrst kvenna til að hljóta kosningu í almennum alþingiskosningum, þ.e. 1934, en hafði áður verið landskjörin 1930.

Skýring á tregðu kvenna til að taka þátt í pólitík á forsendum karla kann að vera það sem Hendrik Ottósson segir hér við þetta ár um átök Alþýðuflokks við kommúnista og síðar um líkamleg átök kommúnista innbyrðis og vitað er um þær ryskingar sem voru á pólitískum samkomum víða um land á fjórða áratugnum, að hafi konur ekki hætt sér í þann hildarleik sem íslensk flokkapólitík var á vinstri arminum þá.
Einn slagurinn snerist beinlínis um konur, Garnaslagurinn 1930.

Myndir