Kveldúlfs- og dósentsm(M)ál & menning
Lag Voða bágt á veslings Rútur
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Lag Bílavísur
Kveldúlfs- og dósentsm(M)ál & menningmeð h'enni kommar sér hasla völlvanheilög situr á þingi þrenningþegar loks býðst að synda í Höll.
Kveldúlfi veittu ei kratar griðkosti Framsókn settuen Ólafur Thors kom vörnum viðvaldi orðin réttu.
Er kommarnir á fjósbitanum fitnafer flokkur krata á enninu að svitnaþví brátt fer undir Haraldi að hitnaog Hermanns upp úr stjórninni að slitna.
Heimildir og samhengi
Dósentsmálið: Vefurhannesgi.blog.is (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, bls. 209: ,,Í lok þriðja áratugarins virtist velgengni Thors Jensen og sona hans engin takmörk sett. Kveldúlfur var stærsta og ríkasta fyrirtæki landsins. ...En þá dró ský fyrir sólu. Viðskiptakreppa sem átti upptök sín í Bandaríkjunum lagði lamandi hönd sína á atvinnu og markaði um allan heim. ...Ríkisstjórnir brugðust við gjaldeyrisskorti með innflutningshöftum og gjaldeyrisskömmtun. Kveldúlfur og önnur útgerðarfyrirtæki ...byrjuðu að safna skuldum í bönkunum".
Frá 1936 voru stjórnmálaátök um hvort framlengja skyldi skuldir Kveldúlfs við Landsbankann og um dósentsstöðu í guðfræði við HÍ og um gerðardómslög í vinnudeilu.
,,Gagnrýni á Kveldúlf byggðist m.a. á því að mikið fjármagn hefði verið dregið úr rekstrinum í ...stórbú Thors Jensen á Korpúlfsstöðum. ... Ólafur Thors var til andsvara á hitafundi verkalýðsfélaga í maí 1936 um Kveldúlfsmálið (og enn á Varðarfundi 24/1 1937) og var vörn hans við brugðið". (Einar Laxness: Íslands saga II, bls. 71 - Kveldúlfsmálið).
Einar Olgeirsson um Ólaf Thors látinn í Þjóðviljanum 5. jan. 1965: ,,Vígfimastan man ég hann frá fundi
í Barnaskólaportinu 1936, er hann mætti einn öllum aðalleiðtogum Alþýðuflokksins. Hann var þá meistari í þeim skylmingaleik ræðuhalda, er þar var háður".
Dró þá Alþýðuflokkur, 2. apríl 1938, ráðherra sinn, Harald Guðmundsson, úr ríkisstjórninni - ,,vinnandi stétta" frá 1934- en veitti henni þó hlutleysi. Fiskmjölsverksmiðjan á Hjalteyri var í smíðum og bjargaði fjárhag Kveldúlfs ásamt styrjöldinni 1940.
Aðalandstæðingur kommúnista í kosningum var Alþýðuflokkurinn.
Á meðan Alþýðuflokkurinn réði ASÍ studdi Sjálfstæðisflokkurinn kommúnista í valdabaráttu þeirra við krata í Alþýðusambandinu.
Vefurhannesgi.blog.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bókaútgáfa Máls og menningar stofnuð. Einar Laxness, Íslands saga II, 153: ,,Þegar Bókmenntafélagið Mál og menning var stofnað 1937 af róttækum aðilum og hóf útgáfu rita með söfnun áskrifenda með góðum árangri, taldi Jónas Jónsson, formaður Menntamálaráðs, nauðsyn að bregðast hart við ...ráðið ætti að hnekkja óhollum erlendum straumum, sem hann taldi á næsta leiti".
Fyrirrennara Máls og menningar, Bókaútgáfuna Heimskringlu, stofnaði Kristinn E. Andrésson með Félagi byltingarsinnaðra rithöfunda 1934.
Vefurbjz.is (opnast í nýjum flipa)
Hingað til fylgdu kommúnistar 6. grein Moskvutesu Komintern eins og þeim var skylt:
6. Kommúnistar skulu afhjúpa friðarhyggju og ÞJÓÐRÆKNI sósíaldemókrata.
En nú var komin ný skipun frá Stalín, er sagði Ísland ekki geta orðið sovét með danskan kóng.
Kommúnistar ráku því kosningabaráttuna með slagorðinu: ,,Ísland frjálst" og birtu á forsíðu Rauða fánans stóra mynd - ekki af Stalín - heldur af Jóni Sigurðssyni!
Íslendingar skyldu fylgja í fótspor Jóns Sigurðssonar í frelsisbaráttunni með því að gefa kommúnistum umboð til að verja arfleifð frelsishetjanna frá 19. öld. Sjá til samanburðar það sem Einar Olgeirsson skrifaði í Rétt 1926 og hér má sjá við1874.
Hugtakið ,,íslensk þjóð" hafði æ verið merkingarlaust í augum kommúnista, - sjá Eina jörð veit ég eystra, bls. 54.
Halldór Laxness, Í austurvegi, bls. 171: ,,...verkamenn um gervallan heim eru ...ein og sama þjóðin".
,,Svona geta örlögin breyst á meðan maður er að taka í nefið". (Halldór Laxness í Sölku Völku, bls. 354).
,,alþjóðahyggja var frá upphafi órjúfanlegur hluti sósíalismans", ritar Skafti Ingimarsson á bls. 306 í Sögu kommúnista á Íslandi.
Hinir flokkarnir vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið og kommúnistar unnu stórsigur og ekki síst fyrir skrif Halldórs Laxness í Þjóðviljann á kosningadaginn.
Í Skáldatíma 1963 segist hann samt aldei hafa haft þær skoðanir sem sú grein boðaði, - sjá ..Eina jörð veit ég eystra", bls. 95.
Tók það þá Halldór 26 ár að að fá sér í nefið?
Þrír byltingarsinnaðir kommúnistar settust á þing, og hlutu heitið ,,vanheilög þrenning” hjá andstæðingum. Þeir kosnir 20. 06. 1937, í meðbyr sem Kommúnistaflokkur Íslands fékk í kreppunni á sama tíma og óskeikull spámaður þeirra, Josef Stalín, sviðsetur réttarhöld í Moskvu að viðstöddum Halldóri Laxness og lætur skjóta félaga sína í forystu Kommúnistaflokks Rússlands og meira en tuttugu þúsund þeirra skammt frá í Butowo í Suður-Moskvu og mörg hundruð þúsund næsta ár.
Halldór Laxness, Skáldatími, 145: ,,Ekkert er algeingara í almennri sálarfræði en að einhver neiti að trúa því sem hann horfir á með augunum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
,,Þjóðernisáhersla þeirra (kommúnista) byggðist á samþykktum Komintern (1934/5) og marx-leninískri hugmyndafræði. Íslenskir kommúnistar höfðu fullyrt að Ísland væri nýlenda, í það minnsta hálfnýlenda, og töldu sig þannig hafa heimild til að halda því fram að byltingarsinnuð verkalýðsbarátta á Íslandi væri þjóðfrelsisbarátta". (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, bls. 326).
Vefurnews.stanford.edu (opnast í nýjum flipa)
D. Shostakovitsj lýkur við 5. sinfóníuna, sem kann að vera dulkóðað svar við þeirri gagnrýni félaga Stalíns, að hann vanrækti þá ,,meginkröfu ...að útrýma öllum grófleika og villimennsku úr hverjum einasta kima sovésks lífs".
(Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 521).
Lokakaflinn hér: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ýmsir aðrir, þá ungir Íslendingar, sóttu fyrirmynd sína til Adolfs Hitlers, sem komst til valda í Þýskalandi 1933. T.d. þeir er sóttu háskóla í Þýskalandi þegar gengi marksins botnféll í kreppunni sem gerði dvölina auðveldari en ella.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Nallinn á þýsku: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sundhöll Reykjavíkur tekin í notkun eftir 10 ára tafsaman undirbúning og fór meira en þrefalt fram úr kostnaðaráætlun.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér fjallað um Sundlaugarnar í Laugardal:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimildir:
Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar II, 153;
Jón Óskar: Týndir snillingar, Fjölvi, 1979;
Um Stalín: Der Spiegel, Gesichte nr. 6, 2016, bls. 69, 77 og 81.
Ragnheiður Kristsjánsdóttir, Nýtt fólk, 272.