Að Hriflu baki' er hurðin skall

Að Hriflu baki' er hurðin skallheyrast fór til kommaþví kokkurinn í Kreml er snjallen kratar ekki tomma.

Glúmur Gylfason · 1936

Heimildir og samhengi

Jónas Jónsson frá Hriflu fékk ekki ráðherrastól að nýju í ,,Stjórn hinna vinnandi stétta" eins og lesa má um við 1935.
Alýðuflokkur átti þar ráðherra, Harald Guðmundsson, með Framsókn, en Alþýðuflokkurinn barðist um atkvæði við kommúnista, sem engan mann áttu á þingi, en yfirbuðu kratana í hverju máli sem gerði þeim stjórnarsamstarfið örðugt.
Fór enda svo að kommúnistar unnu sigur í kosningum næsta ár og fengu þrjá menn kosna á þing. Sjá 1937. Þá hafði Stalín með komintern fyrirskipað íslenskum kommúnistum að gerst þjóðernissinnar af því að Ísland gæti aldrei orðið ,,sovétríki" með danskan kóng.
Þetta ákvað Stalín þrátt fyrir 6. grein Moskvutesunnar, sem var grundvallarskrá Komintern:
,,6. Kommúnistar skulu afhjúpa friðarhyggju og ÞJÓÐRÆKNI sósíaldemókrata".

,,alþjóðahyggja var frá upphafi órjúfanlegur hluti sósíalismans", ritar Skafti Ingimarsson á bls. 306 í Sögu kommúnista á Íslandi.

Kommúnistaflokknum íslenska var stjórnað úr Moskvu frá 1928, þó ekki væri hann formlega stofnaður fyrr en 1930. Hann var alþjóðlega sinnaður til 1934/5 - öreigar allra landa sameinist - og á móti þjóðerniststefnunni sem grasseraði hér enda höfðu kommúnistar hundsaði Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930, en söfnuðu til og gaf Rússum dráttarvél af því tilefni.

,,Líklegt er að stór hluti þess fólks sem léði máls á stuðnigi við bolsévisma hafi alls ekki gert sér grein fyrir hinum raunverulegu markmiðum Bolsévikaflokksins: að taka stóran hluta eigin þjóðar af lífi til að tryggja alræði heimsflokks kommúnista". (af bls. 22 í bók Arnórs Hannibalssonar, Moskvulínan). Hvers vegna Arnór mæli svo má sjá hér við 1919.

Skáldatími HL: ,,Það er í flestum tilfellum stærri glæpur að vera auðtrúa en vera lygari".

Í bók sinni, ,,Eina jörð veit ég eystra", bls. 164/5, ályktar Sigurður Hróarsson að J. Stalín, sem ólst upp við Kákasusfjöllin þar sem ólæsi var mikið og lærði þar til prests í Rétttrúnaðarkirkjunni, hafi yfirfært gagnrýnislausan rétttrúnað á sinn kommúnisma.
Sem dýr fylgja ó- eða lítt læsir (þjóð)flokkar ,,óskeikulum" foringja gagnrýnislaust.

;/;Tikki - tikki - ta, tikki - tikki - ta, augu Stalíns vaka yfir mér. ;/;

Íslenskir menntamenn - kommúnistar - skuldbundu sig skriflega 1928/1930til að hlýða öllum tilskipunum frá Komintern, þ.e., Stalíns.

Myndir