Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1936
1936
1936

Loksins, eftir dúk og disk,

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

LLoksins, eftir dúk og disk,dauða ömmu teljum.Fyrst kaupir ekki Franco fiskfrosinn vestur seljum.

Glúmur Gylfason · 1936

Heimildir og samhengi

Þegar Danir sáu um landhelgisgæsluna þóttu þeir liggja of oft um kyrrt í landi og ekki rækja vörsluna sem skyldi. Danir áttu útflutningshagsmua að gæta, seldu m.a. svínakjöt til Englands.
1899 fluttu nokkrir þingmenn, sem voru líka bændur, tllögu á Alþingi Íslendinga um að hleypa enskum togurum inn í landhelgina (þá 3 mílur meðfram ströndinni) gegn því að þeir héldu áfram að kaupa íslenska sauði. Heimild: Ásgeir Jakobsson, Sagan gleymir engum, bls. 47, og hefur líka eftir Einari M. Einarssyni, skipherra á Þór: ,,óhugnanlega mikil brögð voru að því að íslenskir menn aðstoðuðu Breta við landhelgisveiðar".
Þeir voru bæði um borð og líka í landi við njósnir og skeytasendingar með loftskeytum og Morse-merkjum á dulmáli um það hvar varðskipin héldu sig (1910).

Í togara sem strandaði í Skerjafirði fannst dulmálslykill og játuðu þá fjórir Íslendingar landhelgisnjósnir. Voru þá sett ,,Ömmulög” sem heimiluðu að fylgst væri með loftskeytum til togara en urðu að vera bráðabirgðalög þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði árlega frá stofnun, 1929, beitt málþófi gegn slíkri lagasetningu. Formaður Flokksins var meðeigandi í togaraútgerð sem átti togara sem tekinn var að landhelgisveiðum með breitt yfir nafn og númer.
Í Tímanum, málgagni Framsóknarflokksins, 26. mars 1952 er á bls. 7 nafngreindur útgerðar- og þingmaður þess flokks sem staðið hafi fyrir málþófinu og fullyrt að annar ónafngreindur Sjálfstæðisþingmaður hafi stundað landhelgisnjósnir:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

,,Amma er frísk / amma er veik", var einn þeirra dulkóða sem notaður var og gaf til kynna hvort óhætt væri að veiða í landhelgi eða ekki, þar af nafnið ,,Ömmulög".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Finmtudaginn 28. ágúst 1975 rifjar Alþýðublaðið upp Ömmulögin og landhelgisnjósnirnar á bls. 10:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Ekki er vitað hvort ,,amma" var líftryggð, en þetta ár er með Tryggingastofnun Ríkisins stofnað til almannatrygginga.
Um tryggingasvik fjallar þessi hlekkur: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Ásgeir Jakobsson heldur því fram í Sagan gleymir engum, bls. 59, að 11. nóvember 1937 hafi breski ræðismaðurinn í umboði Hambrosbanka, stærsta lánveitanda ríkissjóðs og íslenskra atvinnurekenda, gengið á fund forsætisráðherra, Hermanns Jónassonar og krafist þess að skipherra Ægis yrði settur í land, en hann hafði verið stórtækur í að taka breska landhelgisbrjóta. Það gekk eftir.
Á bls. 48 segir Ásgeir: ,,Saga Einars M. Einarssonar er ...dómur yfir því tímabili í sögu þjóðarinnar sem hann starfaði á (1928-1937). Þá ríkti skeggöld og skálmöld í landinu. ...Í þessu unga ríki var ekki enn mynduð nægjanleg festa í réttargæzlu né leikreglum stjórnmálanna ...öll brögð virtust leyfileg og jafnvel æðstu dómstólar drógust inn í hringiðu illindanna" (1920).

Halldór Laxness í Sölku Völku, bls. 322: ,,Kvöldblaðið áleit að bráðum mundi einglendíngar koma og slá eign sinni á landið, en sá þjóðflokkur hafði einmitt lánað íslenskum baunkum ógrynni fjár til að styrkja íslenska útgerðarmenn".
Bls. 351, Salka: ,,Hér er allt komið á hausinn, Bogesen situr uppi með fisk fyrir milljón krónur. ...Nú ku vera komin óánægja með konúnginn á Spáni. ...Svona er auðvaldið í heiminum, það er eisog hvergi sé vit í neinu".

Spánarmarkaður lokaðist í borgarastyrjöldinni þar, en þá tekið til við að afla markaðar fyrir fryst flök í USA.

Lögfræðingatal Agnars Kl. Jónssonar, útg. 1963, segir frá því á bls. 546, að Sigurður Jónasson (f. 1896) lfr., forstjóri Tóbakseinkasölu Ríkisins, hafi farið í erindum hins opinbera til Norður-Ameríku 1936 fyrir Fiskimálanefnd.

Þór Whitehead, Ófriður í aðsigi, bls. 210: ,,1930 til 1938 hafði færst fjör í viðskipti Íslendinga og Bandaríkjamanna. ... Þegar tók fyrir gjaldeyrisuppsprettuna í Suðurlöndum urðu þessi viðskipti enn mikilvægari fyrir Íslendinga."

1938 flutti Ísl. vörur út til USA fyrir 1.206.000 dali, en keypti þaðan fyrir 131.000 dali. (Þór Wh.)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Vefuris.istanbulbear.org (opnast í nýjum flipa)

Heimildir: Öldin okkar II, bls. 80; Dagblöð; Ásgeir Jakobsson, Sagan gleymir engum.

Myndir

Einnig frá árinu 1936

  • Að Hriflu baki' er hurðin skall
← 1935Sigurjón Péturs, segðu mér1936 →Að Hriflu baki' er hurðin skall