Sigurjón Péturs, segðu mér
Lesið
Sigurjón Péturs, segðu mérsatt hver bygging fegurst erá öllum Íslands ströndum.,,Þar um eigi þegjum vér:Jóns Þorsteins hús af öðrum berlangt á Norðurlöndum".
Heimildir og samhengi
Sjálfstraust?
Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar II, 152:
,,Við vígslu íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar 1935 var hrifning manna mikil eins og best lýsir sér í eftirfarandi orðum Sigurjóns Péturssonar á Álafossi við vígsluna:
,,Í þessu fagra húsi, sem er fegurst allra íþróttahúsa á Norðurlöndum, á að þjálfa fegurstu mennina og fegurstu konurnar til þess að verða hraustustu og duglegustu borgararnir"".
Sigurjón Pétursson (1888-1955) var afreksmaður í sundi, frjálsum íþróttum og glímu. Hann varð Grettisbeltishafi fjórum sinnum á árunum 1910-1913. sjá
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
og húsið; Vefureuropeana.eu (opnast í nýjum flipa)
Sama hugmynd?:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jón Þorsteinsson hafði á 3ja ártug aldarainnar verið á glæsilegum Íþróttaskóla Niels Bukh í Ollerup, bæði sem nemandi, kennari og meðeigandi.
Samtímis honum þar 1926 til 1927 var Sigurður Greipsson, sem einnig reisti íþróttahús og rak (íþrótta)skóla í Haukadal - báðir fyrir áhrif frá Ollerup. Sjá 1926.
Þriðji íþróttakappinn á staðnum 1926 var Þorgeir Jónsson (1903-19891Wikiwand (opnast í nýjum flipa)), síðar kenndur við Gufunes, glímukappi og hestamaður. Þrír góðir fulltrúar landsins þar.
Heimild: Páll Lýðsson: Sigurður Greipsson og Haukadalsskólinn.