Öllum finnst Jónasi ofaukið vera
Lag Vorið er komið og grundirnar gróa
Öllum finnst Jónasi ofaukið veraEysteinn með Hermanni ráða' öllu tveirHaraldur til þess eins töskur að beraThorsbræður magnast æ, Óli og þeirtalsamband komið um kopar og eir:/: Halldóri bændurnir hampa ei meirhreiðrar sig blikinn, - en æðurin deyr :/::/: kommarnir brosa en kratarnir dalaKristinn E. skáldin sín rekur á bólÍhaldið hættir við ömmu að talaekki sest Jónas á ráðherrastól :/:
Heimildir og samhengi
Jónas Jónsson frá Hriflu, formaður Framsóknarflokksins, hafði þótt einráður sem ráðherra í fyrri stjórn (1927) og varð ekki ráðherra1934 í ,,Stjórn hinna vinnandi stétta” með Alþýðuflokknum.
Í bæklingi sínum, ,,Skuldaskil Jónasar Jónssonar við sósialismann” segir Héðinn Valdimarsson:
,,var skilyrði sett um að stjórnarflokkarnir yrðu að koma sér saman um alla ráðherrana (3). Um þetta var Jónasi að nokkru kunnugt, en þó ekki fyllilega fyrr en í viðtölum við samningamenn Alþýðuflokksins, en þá tók hann hvern og einn einslega út í horn og reyndi að fá þá til að fallast á sig sem ráðherra, en árangurslaust. En hitt vissi Jónas þá alls ekki, að þingflokkur Framsóknar var einnig mótsnúinn því að hann yrði ráðherra”.
Gengu svo fram hjá formanni sínum, Jónasi, og völdu Hermann Jónasson forsætisráðherra, enda Tryggvi Þórhallsson genginn úr flokknum 1933.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Án Jónasar varð samt kurr með krötum, sem þótti Framsóknarstefna stjórnarinnar gera þá berskjaldaða fyrir kommúnistum í stjórnarandstöðu, sem tóku að reyta af þeim fylgið með yfirboðum og unnu stórsigur í kosningum ári síðar.
Jón Þorláksson lést 20. mars og varð Ólafur Thors þá formaður Sjálfstæðisflokksins, en hann og bræður hans áttu nú útgerðina Kveldúlf.
Um Ömmulögin og Íhaldsflokkinn, sjá 1936.
Kristinn E. Andrésson, Moskvutrúr forstjóri bókaútgáfunnar Mál og menning, var í öllum skilningi hirðir flestra skálda og rithöfunda. Af öðru sauðahúsi voru t.d. Hagalín, Kristmann, Guðmundur Dan. og Tómas auk Gunnars Gunnarssonar, og síðar Jón Óskar, sjá 1934, 1937, 1942.
Skýring á ból: (kvía)ból, þar voru fráfæruær mjaltaðar.
Kristinn kallaði sig enn Stalínista 1966, sbr. ævisögu hans eftir Rósu Magnúsdóttur, bls. 442 enda sagði Halldór Laxness þetta í minningargrein í Þjóðviljanum 26. ágúst 1973: ,,En trúarlega grundvallaðir menn sem sintu kalli úr jafn óræðri átt og tímanum, það voru þeir sem stóðu alt af sér. Hjá þeim verða ekki sinnaskifti eftir happa- og glappaaðferðinni, því síður eftir aðferð færibandsins, heldur stendur tíminn að vissu leyti kyr hjá þeim alla tíð frá stund uppljómunarinnar og lýsir manni sínum með sama ljósmegni til hinstu stundar; slíkur maður var Kristinn Andrésson".
HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
1. ágúst opnaðist talsamband við útlönd og töluðu fyrstir saman Kristján X. og forsætisráðherra.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
,,Sjálfstætt fólk" Halldórs Kiljan Laxness kom út við litla hrifningu bænda og annarra, segir höfundur í Skáldatíma 1963,
Í Fjögur skáld í för með presti, bls.168, segir Kristján frá Djúpalæk frá skoðun bænda á persónu Bjarts í Sumarhúsum: ,,Þeim fannst hann svo nakin mynd af þeim sjálfum ...einn sagði: ,,svo segir þetta helvíti (HKL) að við snýtum okkur í lúkurnar og þurrkum okkur á erminni". Og hann gerði það um leið og hann sleppti orðinu".
Halldór kallaði sig sósíalista, en var oft ræðumaður á (úti)fundum kommúnista og jábróðir þeirra á þessum tíma og a.m.k. tvær bækur hans voru óður til Sovétríkjanna: Í austurveg og Gerska ævintýrið, en þar segir að Stalín hafi orðið að bylta landbúnaðinum þar sem rússneskir bændur hafi allir verið ,,Bjartur í Sumarhúsum".
Þrátt fyrir að Halldór hafi fyrstur bent á mikilvægi kenninga Lenins og Stalíns um bændur og þeirra málefni á sköpunarsögu og gerð Sjálfstæðs fólks, gengst hann við því í Skáldatíma 1963, að samyrkjan í framkvæmd haustið 1932 hafi verið bæði botn- og glórulaust helvíti.
(Endursagt úr Sigurður Hróarsson: Eina jörð veit eg eystra, bls. 69).
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sýknaður í Hæstarétti 28. janúar af ákæru um að hafa skotið æðarkollu þegar hann var lögreglustjóri í Reykjavík 1. desember 1930. Atvikið var kært fjórum árum síðar þegar Hermann var í framboði, 1934. Blöð Framsóknarflokksins fundu af því pólitíska lykt. Á sömu árum sendir Kommúnistaflokkurinn ~20 menn í byltingarskólann í Moskvu, þar sem þeim er kennd meðferð vopna, skotfimi og hversu staðið skuli að vopnaðri uppreisn. Þeirra skotmörk voru ekki æðarkollur. (Dagblaðið/Vísir ld. 6/2 1982; Þór Whitehead, Sovét Ísland, 95-102).
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir í grein á netinu forsendur sýknudómsins þær, að æðurin hafi mátti sjáfri sér um kenna: ,,var að þvælast á skotæfingasvæði lögreglunnar og flaug svo í veg fyrir kúluna".
Í þingveislu þar sem aðeins mátti flytja bundið mál voru heiðraðar tvær konur, starfsmenn í þinginu, sem hétu báðar Svanhildur. Fékk Hermann þar 1. verðlaun fyrir vísuna:
Ævi mín var eintóm leit
eftir villtum svani
en ég er eins og alþjóð veit
aðeins kollubani.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Aðrar heimildir: Öldin okkar;
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1400714/ Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)