Vinnandi stéttir stjórna um skeið
Lag Í friði látinn hvílir hér - SB 275
Vinnandi stéttir stjórna um skeiðþá Stalín vísar kommum leið.Nú leyfist sterkt en bjórinn beiðog bláfátækum kosning greið.
Heimildir og samhengi
Karl Sigurbjörnsson, Skrifað í sand, bls. 30:
Ég man þegar einhver strákur spurði mig: Hvað vinnur hann pabbi þinn?" og ég svaraði: ,,Ekkert, hann er prófessor!"
Stjórn hinna vinnandi stétta:
Hermann Jónasson (1896-1976) (B), Eysteinn Jónsson (1906-1993) (B), Haraldur Guðmundsson (1892-1971) (A), dóttursonur Jóns alþm. Sigurðssonar frá Gautlöndum, sjá 1889.
Fromaður Framsóknarflokksins, Jónas Jónsson, fékk ekki ráðherrastól, sjá 1935 og 1939.
,,Vinnandi stéttir”: verkamenn og bændur. (Sjá 1923).
Jón Þ. Þór: Höndlað við Pollinn, bls. 134: ,,...sumir höfundar ...hafa kallað stjórnina haftastjórn ...stjórnin herti (1934) mjög tökin á innflutningsverslun ...samkvæmt lögum (1935) gátu stjórnvöld hlutast til um innflutning allrar vöru til landsins".
Bls. 135: Með þessasri lagasetningu var traustur grunnur lagður að þeirri hagstjórnarstefnu sem íslensk stjórnvöld fylgdu ...allt fram um 1960".
Moskvutrú stjórn Kommúnistaflokks Íslands stendur fyrir hreinsunum. Rekur 20 félaga úr flokknum, m.a. Stein Steinarr (1933).
,,Komintern valdi til starfa fyrir Flokkinn menn sem voru ólíklegir til að hugsa sjálfstætt. ...þeir sem höfðu menntazt voru líklegir til að hugsa. ...því var lögð áherzla á það að ,,verkamenn" ætti að setja í ábyrgðarstöður". (Arnór Hannibalsson, Moskvulínan, bls. 54) Sbr. og 1923 :,,- pennum skulum loka".
Leiðtogi íslenskra kommúnista í líki kardinála var Brynjólfur Bjarnason, sem snert hafði klæðafald dýrlingsins í Moskvu. (Sbr. Árni Snævarr, Liðsmenn Moskvu, bls. 25).
,,Dýrlingur" mun of vægt til orða tekið. Stalín var einráður yfir kommúnistum allra landa um 1923/4 í gegnum Komintern og kom í stað Guðs almáttugs eins og sést hér á efttir.
Sigurður Thoroddsen, æviminningar, 247: ,,Hatrammar deilur urðu í Kommúnistaflokknum um miðjan fjórða áratuginn þar sem réttlínumenn deildu á meðflokksmenn sína fyrir flokkssvik. Einn af þeim sem stimplaður var óalandi og óferjandi var Einar okkar Olgeirsson. Hann viðurkenndi ...yfirsjón sína".
Síðan segir Sigurður að sendur hafi verið maður til Moskvu til að afla úrskurðar og var hann sá, að réttlínumenn hefðu verið á rangri línu.
Skafti Ingimarsson segir í Sögu kommúnista, bls. 246 að Einar vildi að Flokkurinn skilgreindi stefnu sína út frá íslenskum aðstæðum, og á bls. 323 segir Skafti, að flokksdeilurnar 1932-34 hafi snúist umþað hvort kommúnistar ættu að starfa með jafnaðarmönnum eða ekki. Einar með, Brynjólfur á móti.
Frá Stalín, komu síðan breytt boð með sendiboða að nafni Figved, sem stilla skyldi til friðar með kommúnistum hér.
Þessi nýja stefna Stalíns frá 1934 um samvinnu við erkióvininn, sósíaldemókrata (í þeim tilgangi að grafa undan þeim), var samþykkt formlega á 7. allsherjarþingi Kominterns 1935 og hét: Samfylking gegn fasisma - sjá1938- og gilti til 1939, þ.e. eftir að stefna þessi hafði skilað kommúnístum 3 mönnum á alþingi Íslendinga og stofnaður var Sameiningarflokkur alþýðu, Sósíalistaflokkurinn, með Héðinshluta Alþýðuflokksins. Stóð þá Einar Olgeirsson uppi sem sigurvegari í Flokksdeilunum frá 1932 - segir Skafti Ingimarsson í Sögu kommúnista, bls. 324.
Gerðu þá, 23. ág. 1939, Stalín og Hitler með sér griðasáttmála og réðust Rússar á Finna og lögðu undir sig Eystrasaltslöndin, en þetta hrakti Héðin, formanninn, úr Sósíalistaflokknum þegar kommúnistar í honum létu sér hvort tveggja vel líka.
(Þór Whiteh. Millir vonar og ótta, bls, 63).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
FréttDV (opnast í nýjum flipa)
Sjá Þórr Whitehead, ,,Sovét Ísland, Óskalandið, hvenær kemur þú", bls. 71 og 280; Sigurður Hróarsson, Eina jörð veit ég eystra, bls. 85-89. og á þessari síðu við 1938 með tilvitnun í Der Spiegel".
Skáldatími H. Laxness 1963, bls. 142: ,,Þetta snemma (1932) á árum Stalíns var raunverulega búið að banna pólitík í Ráðstjórnarríkjunum ...þjóðinni gert að taka nöldrunarlaust á móti diktati ...frá ríkisstjórninni. ...Allt tal var bannað á almannafæri nema þjóðernislegt og flokkslegt sjálfhól".
Sama bók, bls. 224: ,,...komst ég að því einsog fleiri að undir Stalín var ekki orði trúandi sem nokkur maður sagði eða skrifaði í landinu. ...En það var fyrirgefanlegt ...eitt satt orð gat kostað þá lífið", rétt eins og á Íslandi1698 , sjá það ár hér, og þegar bannað var að sýna af sér kæti 1736, 1746, sjá og 1866.
Enn fremur má spyrja hvort para megi Skáldatíma við Ísaland Gísla Gunnarssonar 1987, sem tókst á við eldri söguskoðun.
Gísli hafði þó komið nýrri söguskoðun á framfæri í ritgerð um Móðuharðindin, M&M 1984, bls. 238 , sjá hér við 1702.
Jóhannesar Katla-kór,
Kristinn, Brynki, Einar,
syngur það sem Stalín stór
stendur fyr'ir og meinar.
Stalín lét á næstu 5 árum drepa ríflega helming 1.225 atkvæðisbærra félaga, rússneska Kommúnistaflokksins og hélt árið 1938 áfram aftökum eftir sýndarréttarhöld yfir þeim sem eftir voru að viðstöddum Halldóri Laxness, sem trúði ekki sínum eigin augum fyrr en í Skáldatíma 1963.
Halldór Laxness, Skáldatími, bls. 145: ,,Ekkert er algeingara í almennri sálarfræði en að einhver neiti að trúa því sem hann horfir á með augunum".
Sunnudaginn 27. maí þetta ár segir Morgunblaðið - í tengslum við ,,kollumál" Hermanns Jónassonar - ,,að Jónas frá Hriflu sé faðir kommúnismans hér á landi".
Þetta ár lét Stalín slátra meira en tuttugu þúsund kommúnistum skammt frá í Butowo í Suður-Moskvu og mörg hundruð þúsundum árið 1937.
Til og með 1938 voru fórnarlömb Stalíns orðin a.m.k. 681.691 Rússi.
Á Íslandi bjuggu þá tæplega 120 þúsund manns og beindu margir för sinni niður Laugaveg undir kröfuspjaldinu: LIFI STALÍN og sést það m.a. á mynd bls. 58 í Sögu Íslands XI. sem líka er hér að neðan.
Í Draumur og veruleiki, bls. 496, segir höfundur, Kjartan Ólafsson, frkvstj. Sósíalistaflokksins m.m., að í starfsstöð Flokksins, Suðurgötu 20, við Tjörnina, hafi mynd Stalíns skreytt vegginn á einni skrifstofunni a.m.k. fram eftir 7. ártug 20. aldar.
Vefurnews.stanford.edu (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa) Í Í Draumur og veruleiki segir Kjartan Ólafsson að íslenskir kommúnistar hafi í pólitískum skrifum í Verkalýðsblaðinu á þessum tíma verið ,,pólitískt óðir, blindaðir af trúarhita".
Kristinn E. Andrésson lét bjóða nokkrum ,,rauðum pennum” til Rússlands 1956 með þeim afleiðingum að 3 gengu af trúnni, þ.á.m. Steinn Steinarr.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Jósef Stalín, f. 1878, lést vorið sem Skjóna fæddist á Löngumýri, Húnavatnssýslu, 1953, skv. Áslaugu Björnsdóttur eiðsvarinni, f. 1945.
Nallinn á rússnesku, þjóðsöngur Sovétríkjanna 1917-1991:
Sjá og 1930 og 1935, 1937, 1938.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Sölubanni aflétt á sterk vín; Bjarni Sæmundsson, fiskifræðingur tekur tappann úr flöskunni sem hann setti í kl. 00.00, 1. 1. 1915. Sjá 1897.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
21 árs og eldri fá kosningarétt, þ.m.t. þurfamenn - lögin sett 1933; hreppaflutningar aflagðir 1935.
Heimildir: Jón Óskar: Týndir snillingar, Fjölvi, 1979.
Der Spiegel Gesichte nr. 6, 2016 bls. 69, 77 og 81.
Öldin okkar; Saga Íslands XI.
Saga LIX - 1 - 283.