Sundurlyndis sönn varð spá
Lag Þegar ég geng út og inn - Bj.Þ. 878
Lag Bílavísur
Sundurlyndis sönn varð spáSameiningarflokkiþá kratar vildu kostum nákommar hleyptu' á brokki.
Fengu að sér Héðin hænthann í vef sinn tvinnavarð þó ei til vista væntí Vetrarstríði Finna.
Gegn Rússum játa sinn hvorn siðC þó einn er listiósamrekstra kýr og kiðkommi og sósíalisti
Er kommarnir á fjósbitanum fitnafer flokkur krata á enninu að svitnaþví brátt fer undir Haraldi að hitnaog Hermanns upp úr stjórninni að slitna.
Hákonar gamla er Stalín í staðfyr'ir Sturlu er Brynjólfur Bjarnaum Sovétið Ísland úr Kötlum kvaðen Keflavík fórnum við gjarna.
Heimildir og samhengi
Sameiningarflokkur alþýðu, Sósíalistaflokkurinn stofnaður með samruna Kommúnistaflokksins og Héðinshluta Alþýðuflokksins. Eftir valdatöku Hitlers í Þýskalandi breytti Stalín stefnu gagnvart erkióvininum, sósíalistum. Skyldu kommúnistar starfa með þeim í þeim tilgangi að grafa undan þeim (Der Spiegel, Gesichte nr. 3, 2017, bls. 61).
Sameiningarflokkurinn fékk í kosningum bókstafinn C, en A hafði Alþýðuflokkur, B Framsókn og D Sjálfstæðisflokkur.
Þegar Framsókn með styrk Sjálfstæðisflokks stöðvar verkfall á togurum í mars með því að vísa deilunni í gerðardóm, þá dró þá Alþýðuflokkur, 2. apríl 1938, ráðherra sinn, Harald Guðmundsson, úr ríkisstjórninni - ,,vinnandi stétta" frá 1934- en veitti henni þó hlutleysi.
Þarna tókst kommúnistum í stjórnarandstöðu að grafa undan Alþýðuflokknum með því að efna til kröfugerða í verkalýðsfélögunum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Eftir árangur kommúnista í kosningunum 1937 gerðist Héðinn Valdimarsson (1892-1948), varaformaður Alþýðuflokksins, talsmaður sameiningar við þá og hélt viðræðum áfram eftir að æðstu stofnanir flokksins, að honum meðtöldum, höfðu skriflega ákveðið að slíta þeim og varð það til þess að honum var vikið úr Alþýðuflokknum 9. febrúar. Lét Héðinn þá, fjórum dögum síðar Verkamannafélagið Dagsbrún, þar sem hann var formaður, reka dauðvona formann Alþýðuflokksins, Jón Baldvinsson (1882- 17. mars 1938), úr Dagsbrún. Deilur í Alþýðuflokknum um sameiningu eða samfylkingu með kommúnistum 1937 til 1938 fylla hálft hundrað blaðsíðna hjá Guðjóni Friðrikssyni ,,Í fjötrum" og má kalla ,,matematik for viderekomne".
Sbr. og Óskar Guðmundsson: Alþýðubandalagið, bls. 22: ,,Kommúnistar höfðu áður haldið því fram í Verkalýðsblaðinu 1933, að ,,skipulagssameining við Alþýðuflokkinn væri glæpur". Nú (1938) var sá glæpur orðinn að veruleika, en hann var þá orðinn að dyggð".
Þetta gerist réttum 700 árum eftir Apavatnsför og Örlygsstaðbardaga 1238.
Hákon gamli er nú dauður, en Stalín lifir og setti kommúnistum fyrir1934hvernig þeir skyldu haga baráttu fyrir Sovét-Íslandi, sjá og 1937.
Komintern treysti best Íslendinga Brynjólfi Bjarnasyni sem var trúr þjónn Stalíns, er tók einn við hlutverki Komintern 1935, og Sturla Sighvatsson seldi sig Noregskonungi, en hvorugum tókst fyrirætlunin.
Héðinshluti Alþýðuflokks og kommúnistar stofnuðu Sameiningarflokk alþýðu, Sósíalistaflokkinn, í október og laut sá nýi flokkur ekki formlega alheimssambandi kommúnista, Komintern í Moskvu.
Þór Whitehead, Ísland í síðari heimsstyrjöld, bls. 195: ,,Íslenskir ráðamenn ... litu svo á, að stofnun Sósíalistaflokksins væri aðeins herbragð kommúnista, sem lytu eftir sem áður stjórn Kremlverja og hygðu á valdarán".
Ekki voru allir kommúnistar hrifnir af að leggja Flokkinn sinn niður né buðu Héðin og félaga velkomna.
Steinn Steinarr orti:
,,Á gröf hins liðna blikar bensíntunna / frá British Petroleum Company”,
þ.e., fyrirtæki Héðins, Olíuverslun Íslands, sem hafði umboð BP.
Kór Rauða hersins syngur Nallann: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimild: Bæklingur, Hvers vegna var Héðni Valdimarssyni vikið úr Alþýðuflokknum, Landsbókasafn, 324.2 Hve, bls. 3.
Ári síðar vildi Sósíalistaflokkurinn ekki fordæma innrás Rússa í Finnland, þar sem þeir í ,,Vetrarstríðinu" drápu 26 þúsund Finna, og gekk þá Héðinn og margir fyrrum Alþýðuflokksmenn úr honum, en 1942 hlaut C listi, Sósíalistaflokksins, þó meira fylgi en A, sem m.a. Stefán Jóhann Stefánsson (1944) rekur til þess í sjálfsævisögu, að samstaða var orðin í styrjöldinni með Rússum og bandamönnum.
Kommúnista og kjósendur þeirra skipti engu hungursneyðin sem löngum hafði ríkt í Sovétríkjunum frá byltingu né að átrúnaðargoðið, Stalin, hafði á þessum tveimur árum flutt mörg hundruð þúsund í Gúlagið og látið drepa a.m.k. 681.691 mann þar af 38.955 skotnir 12. des. 1938.
Vitundarvottur að sýndarréttarhöldunum í Moskvu 1938, yfir Bukharin og félögum, Haldór Laxness, sem og íslenskir Moskvufarar kommúnista og sumir ennþá, ,,gat ekki hugsað sér annan endi en gálgann" fyrir hina ákærðu - sbr. bls. 63 í Gerska ævintýrinu.
Undantekningar voru rithöfundarnir Jón Óskar og Nóbelsskáldið A. Gide,sem trúðu eigin augum og sögðu frá.
Bækur Gide voru þá bannaðar og teknar úr bókasöfnum í Rússlandi, en ekki bækur Halldórs Laxness, sem í Gerska ævintýrinu helgar Gide bls. 7 til 22 og bætir í á bls. 158, 202 og 213 og vandar honum ekki kveðjurnar. Síðar kvað við annan tón hjá Halldóri, þ.e., í Skáldatíma 1963.
Moskvutrúir ,,félagar" kunnu Jóni Óskari engar þakkir fyrir að ,,kjafta frá" - sjá bók hans: Týndir snillingar, Fjölvi, 1979.
Aðrar heimildir: Der Spiegel Gesichte nr. 6, 2016 bls. 69, 77 og 81; Ísl. dagblöð.
Der Spiegel, Gesichte nr. 3, 2017, bls. 61 segir, að frá því áður en Hitler kom til, og nefnir líka dæmi frá 1935, að eftir fyrirmælum frá Moskvu hafi kommúnistar í Þýskalandi verið með taktíska samvinnutilburði við sósíaldemokrata í þeim eina tilgangi að grafa undan þeim. Þess vegna er vísan eins og hún er.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu:
Vetrarstríðið braust út þegar Sovétríkin réðust á Finnland þann 30. nóvember 1939, þremur mánuðum eftir upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar. Sovétríkin voru í framhaldi af því rekin úr Þjóðabandalaginu þann 14. desember. Stalín reiknaði með að hertaka allt Finnland áður en árið væri úti, en mótstaða Finna reyndist sovéska hernum afar erfið, þrátt fyrir að sovésku herdeildirnar hefðu þrefaldan mannafla á við finnska herinn. Finnar héldu út þar til í mars 1940 þegar friðarsamkomulag var undirritað þar sem Finnar urðu að láta af hendi 10% af landsvæði sínu og 20% af helstu iðnaðarsvæðum sínum til Sovétríkjanna.
Nallinn: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)