Þjóðverja fékk Adolf ært
Lag Sá frjáls við lögmál
Þjóðverja fékk Adolf ærtupp á móti Júðalýðþjóðarstoltið þýska særtþar af leiddi annað stríð.
Nasistar pólskum færa friðsig finna til þess knúðaog sæta lagi að losna viðlandeyðuhyskið Júða.
Þá miður gerðist veröld vænvirtist öllum þó bertað Adolf færði oss EdelsteinUrbancic og Róbert.
Heimildir og samhengi
Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 486:
,, ...vegna hins særða þýska þjóðarstolts eftir ósigurinn í styrjöldinni (1914-1918) (var) í heimi tónlistarinnar ...aldrei lýst yfir vopnahléi milli Frakklands og Þýskalands".
Adolf Hitler mun samt varla verða betri en hann er sagður þó að ekki hafi hann fyrstur fundið upp Gyðingahatrið.
Gyðingaofsóknir byrjuðu í evrópu (í síðasta lagi) eftir ræðu páfa, Urbans ll. 27. nóv. 1095, sem hvatti til krossferða til þessað frelsa Jerúsalem úr höndum múslima.
Þetta varð mönnum í mörgum löndum átylla til að ofsækja hina ókristnu gyðinga sem skemmra var að nálgast og hljóta af fjárhagslegan ávinning.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Þjóðverjar ráðast inn í Pólland 1. september og kalla frelsun.
Sama sagði Napoleon, þegar hann innlimaði ítalska héraðið Piemonte í Frakkland 1797, sjá bls. 35/41 í Ritsafni 3, Sverris Kristjánssonar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hefst þá Síðari heimsstyrjöldin og heldur áfram útrýmingarherferð á hendur Gyðingum.
Hitler varð kanslari Þýskalands 30. janúar 1933. Eftir þinghúsbrunann í Berlín 27. febrúar það ár, sem nazistar kenndu kommúnistum um - vafalaust ranglega - lýsti Hitler yfir neyðarástandi og fangelsaði pólitíska andstæðinga, efndi til kosninga og hlaut meirhluta á þingi. Hann tók sér alræðisvald 23. mars 1933.
Griðasamning gerði hann við Stalín 23. ágúst 1939 sem skýrir viðhorf íslenskra kommúnista til breska hernámsliðsins á Íslandi - m.a. dreifibréf til hermanna - og hvernig það snerist 180° þann 22. júní 1941 við innrás Þjóðverja í ,,föðurland verkalýðsins", Rússland.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Vefurblog.dv.is (opnast í nýjum flipa)
Heil Hitler!
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Úr La vita é bella:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kvikmynd um Heimsstyrjöldina síðari, SLÓÐ:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Einar Ólafur Sveinsson: Á Njálsbúð, bls. 134: ,,Miklir menn eru nærri því alltaf vondir", sem er tilvitnun í Acton lávarð.
Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 510:
,,Undir forystu Adolfs Hitler ...hófust ofsóknir á hendur þeim sem ekki deildu pólitískum skoðunum með valdhafanum. ...,,Þriðja ríki" nasista grundvallaðist á meintumn yfirburðum hins aríska kynstofns. Tónlist höfunda af gyðingaættum var bönnuð og hið sama gilti um djass og ómstríða nútímatónlist, hvert svo sem tónskáldið var".
Þar segir Árni Heimir enn fremur frá tónlistarviðburðinum ,,Úrkynjuð músík" í Düsseldorf með verkum m.a. eftir Schönberg og Stravinskij sem vera skyldi öðrum víti til varnaðar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Josef Stalín átti í Rússlandi við sams konar vanda að etja þar sem voru tónskáldin Prokofiev og Shostakovich, sjá 1874 og 1942.
Á Íslandi hélt Jónas Jónsson frá Hriflu ,,Háðungarsýningu" á málverkum eftir Jón Stefánsson, Jón Engilberts, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason og Jóhann Briem árið 1942, sjá þar.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Heinz Edelstein og Róbert Abraham Ottósson voru Gyðingaættar, en kona Victors Urbancic var það. Vegna ætternis áttu þeir fótum fjör að launa frá ríki Hitlers. Þeir voru allir miklir tónlistarmenn og mörkuðu þau heillaspor í tónlistarlíf á Íslandi sem gæta mun um ókomna tíð.
Vefurlhi.is (opnast í nýjum flipa)