Sjómaður þótti Bjarni besti
Lag Jólasveinar 1 og 8
Sjómaður þótti Bjarni bestibatt sinn varning í háan köstþá sigldi vestan frá Hafurshestitil Hvammsfjarðar gegnum Látraröst.
Heimildir og samhengi
Lrm. Bjarni Bjarnason (1639-1723) Jónssonar yngra Magnússonar prúða, flytur allt sitt sjóveg - á áttæringi sem hann gerði sér af rekaviði - frá Hafurshesti í Önundarfirði til Arnarbælis á Fellsströnd, þ.e. sigldi bæði um Látraröst og Hvammsfjarðarröst.
Hvammsfjarðarröstin er e.t.v. verri viðureignar vegna þrengsla og grunnsævis enda næst getið sambærilegrar siglingar um Hvammsfjörð 1882, þegar Guðmundur nokkur Gíslason, vinnumaður hjá am. Boga Thorarensen á Staðarfelli, leiðbeindi dönsku timburflutningaskipi um sundið á millli Kjóaeyja að sunnan en Arnarbæliseyja að norðan. (Heimild: Minnigabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli, bls. 109).
Hér: HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
segir að Bjarni hafi verið einn fjögurrar pilta sem vísað var úr Skálholtsskóla 1664 fyrir meðferð galdrastafa. Þar og í Ísl. æviskrám er nefnt ártalið 1651 og talað um (fjöl)marga).
Fyrir þessa siglingu um rastir tvær festist galdraorð á Bjarna.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Eiríkur hafði numið skólalærdóm í Arnarbæli í Ölfusi hjá séra Jóni Daðasyni (1606 - 1676) sem ættaður var frá Staðarfelli, þ.e., sveitungi Þormóðar í Gvendareyjum, sem kenndi Galdra-Lofti. (1714). Jón, lærifaðir séra Eiríks, lét eftir sig rit um gandreið og særingakvæði.
Mynd Mats Wibe Lund af Hvammsfirði:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)
Látraröst taldi Eiríkur Kristófersson skipherra verstu röst á sínum ferðum hér við land, en bendir í ,,Á stjórnpallinum", bls. 94, á leið í gegnum hana, ,,Gatið", sem verði aldrei ófær og kunnugir þekki.
Bjarni Bjarnason var ungur í siglingum og kom úr þeim 28 ára, efnaður og með tungumálaþekkingu. (Öldin 17.).
Bjarni var tengdafaðir Benedikts Jónssonar (1658-1746), auðmanns og fálkafangara í Hrappsey, sem var sonur þess öfluga og frjósama Brokeyjar-Jóns, – sjá 1604 og 1717.
Bogi, sonur Benedikts, varð prentsmiðjueigandi í Hrappsey 1773, þeirrar sem fór til Leirárgarða um aldamótin 1800. Í riti sínu, ,,Af Brokeyjar-Jóni og niðjum hans” telur Bogi Benediktsson að Bjarni hafa siglt þessa leið 1688. Skipið má hann þá hafa smíðað 1687.
Íslenskar þjóðsögur Jóns Árnasonar halda sig við árið 1687, t.d. á bls.137 í Galdrasögur, útg. 1971 af Óskari Halldórssyni. Í þeirri frásögn hittast þeir Bjarni og Þormóður Eiríksson í Gvendareyjum og vissu báðir lengra en nef náðu. Þormóðar getið hér 1614. En Bjarna hafði verið vísað úr Skálholtsskóla ásamt mörgum öðrum 1651 fyrir meðferð galdrastafa. (Ísl. æviskrár).
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Hvammsfjörður:Vefurannalsvert.prismic.io (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)