Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1688
1688
1688

Þórði biskup þóknaðist

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

ÞÞórði biskup þóknaðistað þrykkja handrit fögursvo almenningur eignaðistÍslendingasögur.

Glúmur Gylfason · 1688

Heimildir og samhengi

Prófessor Árni Magnússon og fleiri safna handritum, en Þórður biskup Þorláksson (1637-1697 ) prentar og gefur út.
Saga Biskupsstólanna: Einar G. Pétursson, bls. 595: ,,Lengst verður prentsmiðju í Skálholti minnst fyrir það að þar hófst útgáfa íslenskra fornrita hérlendis..."
7. apríl 1688 fékk Þórður biskup leyfi frá konungi til að prenta ,,norske og islandske Historier og Antiqviteter ...vorið 1688 undirritaði Þórður biskup formála 3ja bóka".
Þær taldar upp: Landnáma, Íslendingabók, Kristni saga og Saga Ólafs konungs Tryggvasonar, sem inniheldur megnið af Færeyingasögu. Einnig Grænlandssaga Arngríms lærða.
Sigurður Jónsson frá Brún orti:
Á því kunna engir skil
eru þó verkin fögur,
hvernig orðnar eru til
Íslendingasögur.

P. E. Ól.: Saga Íslendinga V, 213: ,,...stafrófið fyrst prentað í hinum minna ketekismus Marteins Lúthers í Skálholti 1686, og voru þar með atkvæði". Endurprentað 1690. ,,En árið 1695 var í Skálholti prentað Stafrófskver (,,Eitt lítið stafrófskver fyrir börn og ungmenni"). Fræði Lúthers eru þar aftan við".
Úrdr: Síðan fylgdu stafrófskver oft fræðum Lúthers. Fyrr lærðu menn jafnvel fremur að lesa af handritum en bókum.

Samtímaheimildir kalla banamein Þórðar skyrbjúg, en nú er talið að um holdsveiki hafi verið að ræða.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1688

  • Fullan aldarfjórðung tók
← 1687Sjómaður þótti Bjarni besti1688 →Fullan aldarfjórðung tók