Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1722
1722
1722

Jón þótt væri ei Vídalín,

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

JJón þótt væri ei Vídalín,og vart um bækur fróðurog engum byði brennivín,biskup þótti góður.

Glúmur Gylfason · 1722

Heimildir og samhengi

Jón (1665-1736) prófastur og fræðimaður Halldórsson í Hítardal (1569, 1664) talinn öruggur um biskupskjör ef sóst hefði eftir, en það gerði Jón á Stað í Steingrímsfirði Árnason (1665-1743) og varð röggsamur Skálholtsbiskup.
Árni Magnússon sagður hafa ráðlagt hann fremur en Þorleif Arason (1724) sem sóttist eftir embættinu.

Báðir foreldrar Jóns Árnasonar biskups höfðu lent í óþægilegum málum sem Páll Eggert Ólason greinir í Ísl. æviskrám I, 60.
Ásamt Jóni Thorchilius rektor og lm. Magnúsi Gíslasyni sendi Jón biskup stjórninni ósk um aðflutningsbann á brennivíni.

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, 614:
,,Með Jóni Árnasyni settist píetisti á biskupsstól í Skálholti 1722-1743. Hann var vandlátur með afbrigðum ...hann var á móti fornritum, taldi trúarspillingu af þeim ...segir hann (í bréfi 1730) Árna (Magnússon) hafa numið brott af landinu öll fornrit þess sem síðan brunnu til ösku í eldinum árið 1728 ...Biskup gefur í skyn að eldurinn í Kaupmannahöfn hafi verið refsing Guðs vegna nytsemdarleysisverka manna eins og Árna. Vitnar hann í Matt. 6:19 máli sínu til stuðnings".

Einn þekktasti frumherji píetismans með þýskum var Hermann Franke. Auk trúarvandlætingar og grandvarleika er hans minnst fyrir að koma á fót skólum og heimilum, Waisenhausen, fyrir fátæk börn og prenta og gefa biblíur og nýjatestamennti í risaupplögum. Um Danmörk og Skotland bárust áhrif til Íslands, t.d. auk Jóns biskups, með Jóni Thorchilius, L. Harboe og Ebeneser Henderson auk húsagatilskipunarinnar 1746.

Alfræðiit.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1721Þjóð að fjölgi þurfi tvo1723 →Höfðingjunum höndin laus,