Þjóð að fjölgi þurfi tvo
Lag Kálfar tveir í kúamynd – eða
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Þjóð að fjölgi þurfi tvoþykir vera sannaðen fátæklingar skulu, sko,skemmta sér við annað.
Deili í hjónabandi beðbara hinir ríkufátækir eiga ekkert meðog engan rétt á slíku.
Önnur lög og ganga í garðsem gróða ríkra hanna:bóndi hirði allan arðog afla vinnumanna
Heimildir og samhengi
Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, Mál og menning 1995, bls. 263–264. Og
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 kvað á um að aðeins „bjargálnamenn“ mætti vígja í hjónaband og var öreigum títt meinað að giftast.
Ísland heyrði enn undir Danmörku á þeim tíma og var samþykktinni hnekkt árið 1768 með fyrirmælum frá Danmörku". (1824, 1921). Sjá og 1857.
Gísli Hólabiskup Magnússon lagði bréflega til við Landsnefndina fyrri (1770-1772) að hreppstjórum yrði fengið vald til að ákveða hverjir fengju að ganga í hjónaband. (Mellan kung och almuge, bls. 146).
1922- nítján undruð tuttugu og tvö - sjá þar, komu til framkvæmda lög, samþykkt á Alþingi 1921 um að giftast mættu þeir sem skulduðu sveitarstyrk.
,,Til endurreists alþingis streymdu frá og með 1847 til 1871 bænarskrár úr sýslum landsins um enn frekari takmörkun öreigagiftinga. Alþingi samþykkti tvívegis, 1859 og 1865 slíkar tillögur, en danska stjórnin neitaði lögunum um staðfestingu". (Jón Blöndal og Sverrir Kristjánsson: Alþingi og félagsmálin, bls. 18-22).
Í ,,Ævintýrinu frá Íslandi til Brasilíu", útg. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, 1938, er frá bls. 190 ýmislegt úr upplýsingabæklingi fyrir væntanlega útflytjendur til Brasilíu á 7. áratugnum. Þar er (bls. 192) fátækum bent á að þeir geti kvænst heitmey sinni í Brasilíu þótt bannað sé þeim það á Íslandi vegna fátæktar.
Alþingisbækur 10,5 / Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, 36: ,,Í Alþingissamþykktinni 1720 var kveðið á um það að húsbóndi ætti allan afla þess vinnumanns, sem hann sendi í verið enda sæi húsbóndinn honum fyrir vistum".