Jón Marteins virti ei boð né bönn
Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619
Jón Marteins virti ei boð né bönnen biskupsdóttir ung og grönní Hólaskóla sök hans sönnsendur burt á næstu önn.
Heimildir og samhengi
Helga (~1705-1750), dóttir Steins Hólabiskups Jónssonar - ung ekkja eftir Jón Vídalín Pálsson, d. 1726 á Hjaltadalsheiði - varð á Hólum ólétt eftir skelminn Jón Marteinsson, sem komst í Hólaskóla haustið 1730 eftir að hafa verið rekinn frá Skálholtsskóla laust eftir nýár. Hann náði að ljúka prófi á Hólum 1732 áður en honum var vísað þaðan fyrir téðan verknað. Barnið var andvana fætt.
Á ferð um Hjaltadalsheiði kvað séra Jón Þorláksson á Bægisá:
Hjaltadals er heiði níð
hlaðin með ótal lýti
fjandinn hefur á fyrri tíð
flutt sig þaðan í víti.
Jón Ólafsson, Grunnvíkingur, ritaði í bréfi til Jóns Thorchilius, Skálholtsrektors, 11. desember 1758: ,,Sá famosus þræll og réttur spitzbub und galenvogel, Jón Marteinsson, hafði með lymsku lokkað mig til að sýna sér historiam mína literariam ..."
Jón Marteinsson átti ekki afturkvæmt til Íslands öðruvísi en í Íslandsklukku Halldórs Laxness og dó úr ófeiti í Kaupmannahöfn 1771 ókvæntur og barnlaus.
(Páll Eggert Ólason: Íslenskar æviskrár III, 226).
Ófagurt æviágrip Jóns Marteinssonar samdi Jón Helgason biskup árið 1931 og er á bls. 102-103 í bókinni Íslendingar í Danmörku.
Eiríkur Jónsson birtir það neðanmáls i Rótum Íslandsklukkunnar, bls. 283-284.