Byr und vængi flmtan fær
Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838
Byr und vængi flmtan færflím ei trúum sjatni:barn eitt undir belti tværberi á Álftavatni.
Heimildir og samhengi
Sigþrúður, blind dóttir gáfukonunnar (Ísl. æviskrár) Kristínar Ólafsdóttur, f.~1664, d. þetta ár, og sr. Jóns á Staðastað Jónssonar, fæðir 4/2 á næsta bæ, Álftavatni, soninn Bjarna, sem skráður er sonur Jóns Gíslasonar vinnumanns.
Húsmóðir þar gerði sér upp þunga og lét sem hún fæddi barn þegar dóttir prests varð léttari sem fór leynt. Upp komst þegar ,,móðirin" nýbakaða ól aftur barn innan skamms.
Páll Eggert Ólason segir í Íslenskum æviskrám um séra Bjarna Jónsson: ,,Faðir hans talinn Jón Gíslason vinnumaður, en móðir hans var Sigþrúður Jónsdóttir prests á Staðastað, Jónssonar (varð hún blind á ungum aldri) og almælt að bróðir hennar, Ólafur blindi, ætti barnið með henni, fremur en síra Ólafur, annar bróðir hennar, aðstoðarprestur föður þeirra, sem missti prestskap fyrir þessa barnskírn".
Bjarni varð síðast merkisprestur á Mælifelli, sjá 1810.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)